PMD Stjórnendanám HR

Heildstæð og hagnýt námslína fyrir stjórnendur

PMD4Stjórnendanám HR - Program for Management Development (PMD)  

Markmið PMD námsins er að styðja stjórnendur í að takast á við áskoranir á vinnustað, vakta breytingar og tækifæri í viðskiptalífinu, nýta sannreyndar og hagnýtar leiðir til að laða fram það besta með hliðsjón af nýrri tækni, tækifærum og þróun alþjóðasamfélagsins.

Lögð er áhersla á að þátttakendur séu ekki einungis að tileinka sér nýja þekkingu og færni á námskeiðunum sjálfum, heldur er skapað lærdómsumhverfi sem hvetur þátttakendur til að endurmeta og bæta stjórnunaraðferðir sínar á milli kennslulota.

Námið er hannað að alþjóðlegri fyrirmynd og lagað að íslenskum aðstæðum til að efla faglega þekkingu stjórnenda og auka færni, frammistöðu og frumkvæði þeirra í dagsins önn.  

Nokkrir helstu sérfræðingar og samstarfsaðilar Háskólans í Reykjavík leiða kennslu með stuðningi PMD fagráðs.  Námið er á meistarastigi og kennslan byggir að miklu leyti á raunverkefnum (case studies) og verkefnum tengdum vinnustað þátttakenda.

Að náminu loknu hafa stjórnendur öðlast færni til aukins árangurs í hlutverki sínu. Námið er þannig uppsett að sú færni sem stjórnendur tileinka sér, nýtist strax í verkefnum fyrirtækisins. Þannig skilar fjárfestingin í náminu sér strax til baka fyrir fyrirtækið. 

Fyrir hverja

Námið er ætlað stjórnendum með minnst 3 ára stjórnunareynslu og haldbæra menntun.  PMD Stjórnendanám HR er kjörinn vettvangur fyrir þá stjórnendur sem vilja bæta við menntun sína og hæfni samhliða vinnu, án þess að skuldbinda sig til langtímanáms.

Uppbygging PMD Stjórnendanáms HR

  • PMD Stjórnendanám HR er samtals 96 klst. og samanstendur af sex lotum.
  • Hver lota er kennd með fjögurra vikna millibili á fimmtudegi og föstudegi frá 9:00 – 17:00, auk verkefnavinnu.
  • Námið er á meistarastigi (án ECTS) og byggist kennslan að miklu leyti á raunverkefnum (case studies).
  • Næsta námskeið hefst þann 20. september 2012 og því lýkur 22. mars 2013.

 

Við hvetjum áhugasama til að skrá sig á kynningarfund um PMD námið

 

Nánari upplýsingar um námið:

 

SÆKJA UM HÉR

 

Nánari upplýsingar

Heba-SoffiaHeba Soffía Björnsdóttir

Verkefnastjóri Opna háskólans

Sími: 599 6576

Netfang: hebasoffia@ru.is

 

 

 

 

Nauðsynlegar upplýsingar við skráningu eru:

  • Fullt nafn
  • Kennitala
  • Símanúmer
  • Tölvupóstfang
  • Fullt nafn, kennitala og heimilisfang greiðanda ef annar en þátttakandi

*Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fella niður greiðsluseðil eftir að nám er hafið. Tilkynna skal forföll skriflega til umsjónarmanns námskeiðsins. Um greiðsluskilmála..











Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica