Að skilgreina umfang, innihald og markmið verkefna ásamt gerð verkefnisáætlunar.
Námskeiðslýsing:
Á námskeiðinu verður farið yfir grundvallaratriði í aðferðafræði verkefnastjórnunar og uppbyggingu verkefna. Á námskeiðinu vinna þátttakendur í hópum með verkefni eins þátttakenda. Verkefnið er brotið niður og sett upp í verkefnisáætlun sem viðkomandi þátttakandi fær með sér heim. Markmið námskeiðisins er að þátttakendur tileinki sér aðferðir verkefnastjórnunar til að geta aukið
skilvirkni í daglegum störfum og stýrt verkefnum.
Helstu efnisatriði:
• Skilgreining á umhverfi, forsendum, markmiðum og umfangi verkefna
• Skilgreining afurða og vörður verkefna
• Forgangsröðun og niðurbrot verkefna niður í verkþætti
• Hagsmunaaðila- og áhættugreiningar
• Grunnatriði verkefnaferilsins, uppbygging verkefnaáætlunar, stöðugreiningar, vörður og verkefnislok
• Verkefnisskipulag og ábyrgð
• Hlutverk verkefnastjóra, eigenda, stýrihóps, verkefnisteymis og verkefnishóps
• Samskipti og hópárangur
• Fundarstjórnun og eftirlit með framgangi verkefna
• Einkenni árangursríkra verkefna og hvernig tryggja má tilætlaða niðurstöðu
• Ekki er fjallað um tölvuforrit á námskeiðinu
Leiðbeinandi:
Þóra Valný Yngvadóttir er verkefnastjóri hjá Landsbankanum og hefur víðtæka reynslu af stjórnun og ráðgjöf. Þóra Valný lauk BA prófi í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun frá Oxford Brookes University 1994 og hefur síðan bætt við sig þekkingu m.a. með löggildingarprófum í fjármálaráðgjöf, verðbréfaviðskiptum og stjórnun.
Kennslufyrirkomulag:
Staður: Námskeiðið verður haldið í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1, 101 Reykjavík.
Stund: Miðvikudaginn 30. maí og fimmtudaginn 31. maí frá kl. 13:00-17:00.
Lengd: Námskeiðið er 8 klukkustundir.
Verð: 38.000,- kr*
Nánari upplýsingar veitir:
Hrafnhildur Sigurðardóttir
Verkefnafulltrúi
Sími: 599 6358
Tölvupóstur: hrafnhildursig@hr.is
www.opnihaskolinn.is
*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

