Umhverfi, samfélag og hluthafar
Fyrir hverja
Námskeið fyrir markaðsstjóra og aðra sem koma að stefnumótun markaðsstarfs.
Námskeiðslýsing
Neytendur verða sífellt upplýstari og kröfuharðari. Fyrir utan gæði og þjónustu vilja viðskiptavinir einnig aukna samfélagslega ábyrgð, umhverfis- og neytendavernd. Markaðsstjórar standa margir frammi fyrir vandasömum ákvörðunum þegar skipuleggja þarf markaðsstarfið með tilliti til þarfa neytenda, umhverfis og hluthafa. Vandinn er ekki síður minni þegar markaðsfé er takmarkað og hámarka þarf árangur með hagkvæmum lausnum.
Á þessu námskeiði verður farið yfir ábyrga stefnumótun markaðsstarfs og aðgerðir sem fyrirtæki geta gripið til við heildræna nálgun markaðsstarfsins. Þekking á nýstárlegum og hagkvæmum markaðsaðgerðum getur riðið baggamuninn í markaðsstarfi fyrirtækja og þá sérstaklega á erfiðum tímum. Hér skiptir hugarfarið til framtíðar að sama skapi máli, að fyrirtæki byggi markaðssetningu sína upp með ábyrgum og „grænum hætti“ til lengri tíma.
Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum en einnig verða raundæmi og umræður. Að námskeiðinu loknu eiga þátttakendur að hafa öðlast fræðilegan skilning á hugtökum heildrænnar markaðsfærslu og þekkja mismunandi stefnumarkandi leiðir í þágu umhverfis, samfélags og hluthafa. Að öðlast dýpri þekkingu á samkeppnisumhverfi þar sem neytendur krefjast aukinnar ábyrgðar fyrirtækja. Skilja áhrifavalda fyrirtækjabrags og mikilvægi markaðshneigðar við innleiðingu markaðsstefnu. Þekkja aðferðir og viðmið árangursmælinga í markaðsstarfi og hvernig ná má aukinni hagkvæmni til lengri tíma litið.
Helstu viðfangsefni
- Skipulagt kaos – stefnumótun markaðsmála í síbreytilegu umhverfi
- Samkeppnishæfni, þarfir neytenda og kröfur hluthafa
- Pláneta til sölu - Sjálfbær markaðsfærsla
- Markaðsaðgerðir og fyrirtækjabragur
- Hagkvæmni, árangur og fjárhagslegt aðhald
Leiðbeinandi
Halldór Örn Engilbertsson er aðjúnkt í markaðsfræðum við Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Hann hefur undanfarin fjögur ár kennt margvísleg námskeið í markaðsfræðum og einnig stundað rannsóknir á sviði markaðsmála og neytendahegðunar. Hann starfaði sem markaðsstjóri hjá Norsk Bokforlag í Noregi á árunum 1999-2002. Halldór hefur einnig veit ýmsum aðilum markaðs- og stefnumótunarráðgjöf og situr nú í stjórn Evrópsku markaðsakademíunnar.
Sérsvið Halldórs er stefnumótun markaðsmála, árangursmælikvarðar og markaðssamskipti
Fyrirkomulag
Verð: 29.500 kr.
Tími: 6 klst. Nánar auglýst síðar.
Staðsetning: Háskólinn í Reykjavík, Menntavegi 1
Nánari upplýsingar
Sigríður Soffía Sigurjónsdóttir
Sími: 599 6261
Netfang: sigridurs@ru.is
Nauðsynlegar upplýsingar við skráningu eru:
- Fullt nafn
- Kennitala
- Símanúmer
- Tölvupóstfang
- Fullt nafn, kennitala og heimilisfang greiðanda ef annar en þátttakandi
*Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fella niður greiðsluseðil eftir að nám er hafið. Tilkynna skal forföll skriflega til umsjónarmanns námskeiðsins. Nánar um greiðsluskilmála hér.

