Opni háskólinn býður upp á 10 klst námskeið í Excel fyrir lengra komna. Námskeiðið kemur helst til með að nýtast þeim sem eru leitast eftir að geta nýtt Microsoft Excel forritið nánar við vinnu og/eða reglulega vinnslu og vilja bæta almenna þekkingu sína á möguleikum þess. Námskeiðið er sjálfstætt framhald af námskeiðinu Excel - grunnnámskeið sem einnig er kennt í Opna háskólanum.
Námskeiðslýsing:
Farið er í gegnum hagnýt atriði í notkun Microsoft Excel og dýpra í hvaða möguleika forritið býður upp á í daglegri notkun og við notkun í störfum okkar.
Farið verður meðal annars yfir eftirfarandi atriði:
- Helstu formúlurnar í Excel og hvernig er hægt að bjarga sér og auðvelda vinnslu með notkun þeirra (sumif, vlookup, countif, if)
- Vinnsla með töflur og gögn (sort and filter, pivot)
- Helstu flýtitakkarnir í Excel í gegnum lyklaborð (nýtist í Microsoft Office forritum flestum einnig)
- Hvernig aðrar skrár eru settar inn í Excel og aðgengilegar þar, t.d. frumgögn, heimildir o.s.frv. (object)
- Skilyrt útlit og gildi í reitum (conditional formatting og data validation)
- Öryggi skjala, aðgangs- og breytingastjórnun
Þetta er ekki tæmandi upptalning heldur einungis dæmi um hvað verður farið í.
Leiðbeinandi:
Páll Daði Ásgeirsson, löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte.
Kennslufyrirkomulag:
Námskeiðið hefst 29. maí 2012 og lýkur 7. júní.
Kennsla fer fram á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl.16:30 og 19:00.
Námskeiðið er í heildina 10 klst, þ.e.a.s. 4 skipti (4 * 2,5 klst.)
Kennsla fer fram í tölvustofu.
Kennsla fer fram á Excel 2010.
Verð: 38.000,- kr.
* Ath takmarkaður þátttakendafjöldi.
Nánari upplýsingar veitir:
Hrafnhildur Sigurðardóttir
Verkefnafulltrúi
Sími: 599 6358
Tölvupóstur: hrafnhildursig@hr.is
www.opnihaskolinn.is
*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

