Námskeiðið er ætlað stjórnendum. Á námskeiðinu er fjallað um frammistöðustjórnun, frammistöðumat, styrkjandi og leiðréttandi endurgjöf og lykilhlutverk stjórnandans í liðs- og skipulagsheildum. Þátttakendur vinna verkefni þar sem þeir koma auga á lykilframmistöðuþætti í sinni rekstrareiningu og skilgreina lykilmælikvarða árangurs og lykilaðgerðir sem þar liggja að baki. Hvað einkennir góða stjórnendur, hvaða viðhorf hafa þeir tamið sér og hvernig hegða þeir sér? Fjallað verður um mikilvægi forystu og helstu hugtök stjórnunarfræðanna skoðuð.
Ávinningur
Að námskeiðinu loknu á þátttakandi að hafa.
Öðlast skilning á lykilhlutverki stjórnandans.
Öðlast þekkingu á frammistöðustjórnun.
Tileinkað sér helstu aðferðir við frammistöðumælingar.
Aukið hæfni sína til að veita endurgjöf.
Þekkingu á því hvernig hann/hún getur markvisst unnið að því að laða fram það besta hjá öðrum.
Öðlast innsýn í lykilþætti til árangurs einstaklinga, liðsheilda og skipulagsheilda.
Leiðbeinandi:
Kristinn Tryggvi Gunnarsson er eigandi og stjórnunarráðgjafi hjá Expectus, stjórnendaþjálfari við Opna háskólann og stundakennari við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Hann er viðskiptafræðingur að mennt og lauk B.Sc. prófi í stjórnun og stefnumótun frá University of North Carolina og MBA prófi frá University of Georgia. Kristinn hefur starfað með fjölmörgum af stærstu fyrirtækjum landsins á sviði stefnumótunar, markaðs- og þjónustumála. Hann hefur mikla reynslu af lóðsun og stjórnendaþjálfun og hefur auk réttinda frá Franklin Covey lokið þjálfun hjá Project Adventure, Corporate Lifecycles Inc, Lego Serious Play, Blue Ocean Strategy, Corporate Coach University og SHL.
Kristinn hefur kennt þjónustustjórnun við HR frá árinu 2003, starfaði sjö ár sem útibússtjóri hjá Íslandsbanka og 6 ár sem ráðgjafi og stjórnandi hjá Capacent og stýrði m.a. samþættingu ráðgjafa og rannsókna á sviði þjónustumála.
Fyrirkomulag
Námskeiðið verður kennt í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1.
Lengd: 8 klukkustundir
Verð: 39.900,- kr*
Nánari upplýsingar
Sóley Jónsdóttir
Verkefnastjóri
Sími: 599 6341
Tölvupóstur: soleyjons@ru.is
www.opnihaskolinn.is
*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

