Markaðsumhverfið hefur breyst mikið undanfarin ári og áratugi. Tengsl fyrirtækja við viðskipavininn skipa nú ríkari sess. Markaðssetning nú miðar meira að því að halda í núverandi viðskiptavini en að leitast stöðugt við að ná í nýja með einhliða
boðskiptum frá fyrirtæki til neytenda. Vegna þessa er stjórnun viðskiptatengsla mikilvægari en áður. Eina sala er ekki endapunktur heldur byrjun á sambandi. Hugmyndafræðin sem framangreint byggir hefur verið nefnt samskiptamarkaðssetning. CRM er angi af samskiptamarkaðssetningu og er ferlið að safna og nota upplýsingar um viðskiptavini sem auka skilning á viðskiptavinunum til að geta þjónustað þá betur.
Í námskeiðinu verður er fjallað um samskiptamarkaðssetningu og CRM og hvernig fyrirtæki sem fylgja hugmyndafræðinni búa til hagnað og eru báðum aðilum, fyrirtæki og viðskiptavini, í hag þegar til lengri tíma er litið. Þá verður fjallað ítarlega um tengd hugtök, sér í lagi innri markaðssetningu en einnig þætti eins og stig markaðssetningar, markhópagreiningu, meðhöndlun á kvörtunum, orðspor, o.fl.
Leiðbeinandi: Friðrik Larsen, lektor við Viðskiptadeild HR
Kennslufyrirkomulag
Stund: Föstudagurinn 2. mars frá kl. 9-13
Staður: Opni háskólinn í HR, 2. hæð, Mars-álma
Verð: 21.000 kr.* (innifalið í verði eru léttar veitingar)
Nánari upplýsingar veitir:
Særún Ósk Pálmadóttir
Verkefnafulltrúi Opna háskólans
S. 599-6342
www.facebook.com/opnihaskolinn
Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
*Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

