Þetta snýst um þig og þitt fólk!

Opni háskólinn í HR býður stjórnendum að sækja opin námskeið á sviði stjórnunar og stefnumótunar.
Yfirlit yfir þau námskeið sem eru á dagskrá vorið 2012 má finna hér að neðan.
Námskeiðin eru sérsniðin að þörfum vinnustaða í samstarfi við leiðbeinendur.
Ábyrgð og árangur stjórnarmanna
Námskeiðið Ábyrgð og árangur stjórnarmanna er unnið í samstarfi við FME og er gagnlegur undirbúningur undir hæfnismat allra þeirra sem koma að stjórnarsetu og stjórnarstörfum eftirlitskyldra aðila samkvæmt skilyrðum FME. Námið hefst 16. maí n.k. og er kennt einu sinni í viku fram til 13. júní, eða í fimm vikur samtals.
Stjórnun og forysta í ferðaþjónustu
Stjórnun og forysta í ferðaþjónustu er 48 klst. nám hannað til að efla almenna stjórnunar og leiðtogahæfni þátttakenda og skapa sameiginlegan vettvang til tengslamyndunar milli stjórnenda í ferðaþjónustu. Ekki er komin dagsetning á næsta námskeið.
Nánari upplýsingar
Særún Ósk Pálmadóttir
Verkefnafulltrúi hjá Opna háskólanum
saerunosk@ru.is
Sími: 599 6342

