Leiðir til að bæta líðan, auka afköst og draga úr streitu
NÁMSKEIÐI HEFUR VERIÐ FRESTAÐ
Hugarfar og líðan starfsmanna hafa lykiláhrif á afköst og gæði vinnu. Jákvætt hugarfar og vellíðan hjálpa til við lausn flókinna verkefna, ýta undir nýsköpun og spila lykilhlutverki í sterkri liðsheild. Stjórnendur eru í lykilstöðu til að hafa áhrif á líðan starfsmanna. Þegar stjórnandi er meðvitaður um þá þætti sem hafa áhrif á líðan, getur hann unnið markvisst að því að skapa jákvætt umhverfi sem hefur góð áhrif á líðan, einfaldar úrvinnslu flókinna verkefni og ýtir undir nýsköpun. Á sama tíma og unnið er að jákvæðu vinnuumhverfi er dregið úr neikvæðum áhrifum streitu, fjarvera starfsmanna minnkar og afköstin aukast.
Á námskeiðinu verður farið yfir:
• Hvaða þættir hafa áhrif á líðan
• Hvaða áhrif hugarfar og líðan hefur á afköst í vinnu
• Hvernig hægt er að hafa stjórn á eigin líðan og skapa aðstæður sem hafa jákvæð áhrif á líðan annarra
• Viðurkenndar aðferðir til að bæta líðan, auka einbeitingu og draga úr neikvæðum áhrifum streitu, sem byggja á mindfulness æfingum sem einfalt er að nýta á vinnustöðum.
Ávinningur:
• Betri skilningur á því hvaða þættir hafa áhrif á líðan
• Aukin þekking á því hvaða áhrif líðan hefur á afköst og gæði vinnu
• Þjálfun í viðurkenndum aðferðum sem auka einbeitingu, bæta líðan og draga úr streitu
• Færni til að bæta eigin líðan, styrkja starfsanda, efla gæði og afköst starfsmanna
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sálfræðingur hefur rannsakað hvaða þættir hafa áhrif á hamingju, heilsu, velgengni og vellíðan. Hún hefur jafnframt áhuga á að finna hagnýtar leiðir til að nýta niðurstöðurnar og hefur hún ritað fjölda greina um efnið bæði innan lands og utan. Hún er höfundur bókarinnar ,,Velgengni og vellíðan –um geðorðin 10“ og á kafla í bókunum ,,The World book of Happiness“ og „Positive Psychology for Social Change“. Dóra Guðrún er fellow við The Well-being Institute við Cambridge háskóla í Bretland og The Institute of Coaching við Harvard háskóla í Bandaríkjunum, hún situr í stjórn Evrópusamtaka um jákvæða sálfræði, er í fagstjórn markþjálfunarnáms Opna Háskólans og vinnur sem sviðstjóri áhrifaþátta heilbrigðis hjá embætti landlæknis.
Kennslufyrirkomulag
Leiðbeinandi: Dóra Guðrún Guðmundsdóttir
Tími: Fimmtudagurinn 12. apríl 2012 frá kl. 9:00-13:00
Staður: Opni háskólinn í HR, Menntavegi 1 - Mars-álma, 2. hæð
Verð: 25.000 kr.* (innifalið í verði eru léttar veitingar)
Nánari upplýsingar veitir:
Særún Ósk Pálmadóttir
Verkefnastjóri Opna háskólans
Sími: 599 6342
Netfang: saerunosk@ru.is
Nauðsynlegar upplýsingar við skráningu eru:
- Fullt nafn
- Kennitala
- Símanúmer
- Tölvupóstfang
- Fullt nafn, kennitala og heimilisfang greiðanda ef annar en þátttakandi
*Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fella niður greiðsluseðil eftir að nám er hafið. Tilkynna skal forföll skriflega til umsjónarmanns námskeiðsins. Nánar um greiðsluskilmála hér.

