Aukið sjálfstraust og styrkar undirstöður í samtals- og viðtalstækni
Fyrir hverja
Námskeið fyrir einstaklinga sem vilja aukna færni í viðtalstækni og samningum.
Námskeiðslýsing
Hér er lögð áhersla á að kynna fyrir stjórnendum ákveðnaþætti sem geta styrkt undirstöður þeirra og sjálfstraust til að takast á við
það mikilvæga ferli að þekkja og undirbúa sig af kostgæfni fyrir starfsmannasamtöl og launaviðtöl. Í mörgum fyrirtækjum er launakostnaður einn af stærstu útgjaldaliðum fyrirtækisins og því skiptir miklu máli að vel sé haldið á málum. Að sama skapi eru launaviðtöl áskorun sem margir stjórnendur mundu gjarnan vilja vera án. Tilgangur og ávinningur af starfsmannasamtölum
verður ræddur út frá ýmsum sjónarhornum s.s. stjórnanda, starfsmanns og yfirstjórnar.
Lögð er áhersla á að kynna fyrir stjórnendum ákveðna þætti sem geta styrkt undirstöður þeirra og sjálfstraust til að takast á við
þetta mikilvæga verkefni.
Áhersla verður lögð á að þátttakendur námskeiðs fái hagnýta fræðslu um það hvernig þeir bera sig að í starfsmannasamtölum og launaviðtölum auk þess að þekkja helstu undirstöður í samningatækni tengt þessum þáttum.
Helstu viðfangsefni:
- Undirbúningur yfirmanna og starfsmanna fyrir starfsmannasamtöl og launasamtöl
- Uppbygging og framkvæmd
- Flæði í samtölum
- Markmiðasetning
- Mælikvarði á gott samtal
- Eftirfylgni samtala
- Samningatækni í virkni
Leiðbeinandi
Ingunn B. Vilhjálmsdóttir
Fyrirkomulag
Námskeiðið verður kennt miðvikudaginn 28. og fimmtudaginn 29. september.
Lengd: 6 klst.
Staðsetning: Háskólinn í Reykjavík, Menntavegi 1
Verð: 29.500,- kr*
Nánari upplýsingar
Sóley Jónsdóttir
Sími: 599 6341
Netfang: soleyjons@ru.is
*Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fella niður greiðsluseðil eftir að nám er hafið. Tilkynna skal forföll skriflega til umsjónarmanns námskeiðsins. Nánar um greiðsluskilmála hér.

