Á námskeiðinu er skoðað hvernig hægt er að stuðla að sterkri liðsheild í atvinnulífinu með aðferðum íþróttasálfræðinnar. Leitast verður svara við eftirfarandi spurningum: Hvað eiga íþróttalið og starfshópar sameiginlegt? Hvað er liðsheild? Hvað einkennir þau lið sem ná árangri og hvernig er hægt að nýta sér þá þekkingu?
Lögð er áhersla á að skoða hvað stjórnandi getur gert til þess að efla liðsheild á sínum vinnustað, m.a. með aðferðum sem heimsklassa þjálfarar og íþróttamenn nota til þess að ná hámarks árangri. Auk þess eru tengslin á milli liðsheildar og starfsánægju skoðuð og farið í þær aðferðir sem má nota til að ná fram hvoru tveggja.
Námskeiðið er í fyrirlestrarformi auk verklegra æfinga.
Leiðbeinendur:
Hafrún Kristjánsdóttir útskrifaðist sem sálfræðingur frá Háskóla Íslands 2005 en meistaraverkefni hennar var á sviði íþróttasálfræði. Frá útskrift hefur hún starfað á geðsviði Landspítala. Hafrún hefur verið stundarkennari við HR frá 2008 og aðjúnkt við íþróttasvið frá 2011. Hafrún er meðhliða stafi í doktorsnámi við Læknadeild Háskóla Íslands. Hafrún situr í stjórn Sálfræðingafélags Íslands. Er í heilbrigðisráði ÍSÍ og er sálfræðingur í fagteymi ÍSÍ og fór sem slíkur á síðustu tvenna smáþjóðaleika. Hafrún stundaði handbolta með Val um árabil og á fjölmarga leiki með meistaraflokk félagsins sem og landsliði
Íslands. Hafrún situr nú í aðalstjórn Vals.
Rúnar Helgi Andrason útskrifaðist með doktorsgráðu í klínískri sálfræði frá Rutgers University, NJ, árið 1999. Í lokaverkefni
sínu gerði hann mat á sálfræðilegri þörf íþróttaliðs til að bæta frammistöðu sína og hannaði námskeið til að mæta þeirri þörf. Eftir útskrift vann Rúnar á geðsviði Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri í fimm ár en fór síðan að vinna á Reykjalundi, endurhæfingarmiðstöð. Auk þess hefur Rúnar verið stundarkennari við HÍ frá 2000, við HA frá 1999 og HR frá 2006. Þá hefur hann verið með sinn eigin stofurekstur í rúmlega 11 ár. Rúnar er formaður siðanefndar Sálfræðingafélags Íslands.
Kennslufyrirkomulag
Dagsetning: Miðvikudagurinn 25. janúar 2012
Stund: Kl. 9-13
Staðsetning: Opni háskólinn í HR, 2. hæð, Mars-álma
Verð: 22.000 kr.* (innifalið í verði eru léttar veitingar)
Leiðbeinendur: Hafrún Kristjánsdóttir, sálfræðingur og stundakennari við HR og Rúnar Helgi Andrason, sálfræðingur
Nánari upplýsingar veitir:
Særún Ósk Pálmadóttir, verkefnafulltrúi
Netfang: saerunosk@ru.is
Sími: 599-6342
www.facebook.com/opnihaskolinn
Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
*Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

