Skuldabréf: notagildi, eiginleikar og útreikningar
Námskeiðið tekur á flestum tegundum skuldabréfa og verða eiginleikar þeirra skilgreindir. Farið verður yfir aðferðir við útreikninga á flestum skuldabréfum og uppsetningu útreikninga þeirra í líkanaformi.
Námskeiðið tekur á eiginleikum meðaltíma og íhvolfa sem notuð eru við útreikninga á viðkvæmni verðmætis skuldabréfa þegar breytingar verða á ávöxtunarkröfu. Farið verður í útreikninga og dæmi sem og útskýringar og túlkun á niðurstöðu næmigreiningar.
Námskeiðið hentar þeim sem hafa lágmarksþekkingu á skuldabréfum og eiginleikum þeirra og vilja bæta við þekkingu sína. Það hentar vel stjórnendum fjármála sem og starfsmönnum fjármálasviða fyrirtækja.
Farið verður yfir eftirfarandi atriði:
- Mismunandi tegundir vaxtaútreikninga
- Spot, Forward og Swap vextir
- Zero-vexti og gerð vaxtaferilsins
- Meðaltíma (e. Duration) skuldabréfa
- Íhvolfun (e. Convexity) skuldabréfa
- Mat á greiðslufallsáhættu (e. Credit risk)
Leiðbeinandi: Kristján Markús Bragason, MSc í fjármálum fyrirtækja og í fjárfestingastjórnun. Partner hjá PricewaterhouseCoopers
Kennslufyrirkomulag
Tími: Námskeiðið er 8 klst langt og skiptist niður á tvo daga; þriðjudaginn 7. febrúar 2012 og fimmtudaginn 9. febrúar 2012 frá kl. 9-13 báða dagana.
Staðsetning: Opni háskólinn í HR, Menntavegi 1 - Mars-álma, 2. hæð
Verð: 49.000 kr.*
SKRÁNING FER FRAM HÉR
Nánari upplýsingar:
Særún Ósk Pálmadóttir
Verkefnafulltrúi Opna háskólans
Sími: 599 6342
Netfang: saerunosk@ru.is
Nauðsynlegar upplýsingar við skráningu eru:
- Fullt nafn
- Kennitala
- Símanúmer
- Tölvupóstfang
- Fullt nafn, kennitala og heimilisfang greiðanda ef annar en þátttakandi
*Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fella niður greiðsluseðil eftir að nám er hafið. Tilkynna skal forföll skriflega til umsjónarmanns námskeiðsins. Nánar um greiðsluskilmála hér.

