Námskeiðið miðar markvisst að því að auka færni þátttakenda í að beita sér á fundum, í ræðu og á riti — með sérstakri áherslu stjórnun og leiðtogahæfni. Námskeiðið mætir brýni þörf, en í Innarsveitarkróniku Halldórs Laxness (1970) er að finna eftirfarandi lýsingu á samræðuaðferð Íslendinga: „Því hefur verið haldið fram að íslendíngar beygi sig lítt fyrir skynsamlegum rökum, fjármunarökum varla heldur, og þó enn síður fyrir rökum trúarinnar, en leysi vandræði sín með því að stunda orðheingilshátt og deila um titlíngaskít sem ekki kemur málinu við; en verði skelfíngu lostnir og setji hljóða hvenær sem komið er að kjarna máls. Afturámóti klífa þeir þrítugan hamarinn til að verða við bænarstað vina og frænda, enda mundi landsbygð á Íslandi hafa lagst niður fyrir mörgum öldum ef eigi væri svo. Þó er enn ein röksemd sem íslendíngar eru fúsir að hlíta þegar alt um þrýtur, en það er fyndni; má vera aulafyndni. Við hlægilega lygisögu mýkist þjóðfélagið og fer að ljóma upp; jarðvegur sálarinnar verður jákvæður.“
Í námskeiðinu Samræðulist er þátttakendum leiðbeint um hvernig þeir geti markvisst beitt sér í samræðum þannig að samtalið verði styðjandi, uppbyggjandi, og gjöfult. Kjarni námskeiðsins er að leiðbeina um hin Sókratíska samræðulist þar sem ekkert er tekið sem gefið heldur hvaðeina rætt af einurð.
Leiðbeinandi: Dr. Haukur Ingi Jónasson, lektor og forstöðumaður MPM-náms í Háskólanum í Reykjavík
Kennslufyrirkomulag
Staður: Opni háskólinn í Háskólanum í Reykjavík, 2. hæð (Mars-álma)
Stund: Námskeiðið er kennt í 4 klst frá kl. 9-13 þann 6. mars 2012
Verð: 25.000 kr.
Nánari upplýsingar gefur:
Særún Ósk Pálmadóttir
Verkefnafulltrúi Opna háskólans
Sími: 599 6342
Netfang: saerunosk@ru.is
Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

