Aukið sjálfstraust og styrkar undirstöður í samtals- og viðtalstækni
SKRÁNING
Fyrir hverja
Námskeiðið er ætlað stjórnendum og öðrum þeim sem vilja aukna færni í viðtalstækni og samningum.
Námskeiðslýsing
Lögð er áhersla á að kynna fyrir stjórnendum ákveðna þætti sem geta styrkt undirstöður þeirra og sjálfstraust til að takast á við
það mikilvæga ferli að þekkja og undirbúa sig af kostgæfni fyrir starfsmannasamtöl og launaviðtöl. Í mörgum fyrirtækjum er launakostnaður einn af stærstu útgjaldaliðum fyrirtækisins og því skiptir miklu máli að vel sé haldið á málum. Að sama skapi eru launaviðtöl áskorun sem margir stjórnendur mundu gjarnan vilja vera án. Tilgangur og ávinningur af starfsmannasamtölum verður ræddur út frá ýmsum sjónarhornum s.s. stjórnanda, starfsmanns og yfirstjórnar.
Áhersla verður lögð á að þátttakendur námskeiðs fái hagnýta fræðslu um það hvernig þeir bera sig að í starfsmannasamtölum og launaviðtölum auk þess að þekkja helstu undirstöður í samningatækni tengt þessum þáttum.
Helstu viðfangsefni:
- Undirbúningur yfirmanna og starfsmanna fyrir starfsmannasamtöl og launasamtöl
- Uppbygging og framkvæmd
- Flæði í samtölum
- Markmiðasetning
- Mælikvarði á gott samtal
- Eftirfylgni samtala
- Samningatækni
Leiðbeinendur
Ingunn B. Vilhjálmsdóttir ráðgjafi hjá Attentus, MBA.
Ingunn hefur víðtæka reynslu af kjarasamningagerð, áætlanagerð, vali á mannauðs- og launakerfum, breytingastjórnun, samruna fyrirtækja og hagræðingu deilda og sviða.
Inga Björg Hjaltadóttir hdl. hjá Attentus, partner Acta.
Inga hefur annast stundakennslu í alþjóðlegum viðskiptarétti við Háskólann á Bifröst frá árinu 2005 og stundakennslu í lögfræði í tækni- og verkfræðideild HR 2008-2010. Inga starfar jafnframt hjá Acta lögmannsstofu og er einn meðeigenda Acta. Inga var í samninganefnd Reykjavíkurborgar, samninganefnd Launanefndar sveitarfélaga og samninganefndum hjá Eimskipafélaginu vegna kjarasamninga. Inga hefur auk þess víðtæka reynslu af því að semja um laun og kjör við starfsmenn og af samningum sem starfandi lögmaður Þá er Inga dómari í Félagsdómi, tilnefnd af fjármálaráðherra f.h. íslenska ríkisins.
Fyrirkomulag
Námskeiðið verður kennt þriðjudaginn og miðvikudaginn 17. og 18. apríl 2012 frá kl. 13-17 báða dagana.
Lengd: 8 klst.
Staðsetning: Opni háskólinn í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1
Verð: 49.000,- kr*
Nánari upplýsingar
Særún Ósk Pálmadóttir
Verkefnafulltrúi
Sími: 599 6342
Netfang: saerunosk@ru.is
www.opnihaskolinn.is
*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

