Ráðningarferlið og móttaka nýrra starfsmanna

Námskeiðslýsing

Lögð áhersla á að kynna fyrir stjórnendum og ábyrgðaraðilum mannauðsmála ráðningaraðferðir og móttöku nýrra starfsmanna.  Farið verður yfir ráðningarferlið, frá greiningu starfs til ákvörðunar um ráðningu. Ítarlega verður fjallað um aðferðir við mat á umsækjendum og verkefni tengt ráðningarferlinu. Kynnt verða helstu próf tengt ráðningum. Farið verður yfir ferli tengt móttöku nýrra starfsmanna, gátlista fyrir starfsmannadeildir og stjórnendur og fastráðningarviðtal í lok reynslutíma. Skoðuð verða raunhæf dæmi af íslenskum vinnumarkaði.

Helstu þættir:

-  Ráðningarferlið

-  Ráðningarviðtöl, spurningatækni og samtalstækni

-  Val á einstaklingum

-  Móttökuferli, gátlistar starfsmannadeildar og yfirmanna

-  Þjálfun nýrra starfsmanna

-  Fyrirlestur / verkefni / æfingar / umræður

Kennslufyrirkomulag

Leiðbeinandi: Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir

Opni háskólinn í HR, Reykjavík: Fimmtudagur 15. og föstudagur 16. september frá kl. 13.30 - 16.30

Lengd: 6 klst.

Verð: 29.500,- kr*

 

 

 

 

Nánari upplýsingar um skráningu

SoleySóley Jónsdóttir
Verkefnafulltrúi
Sími: 599 65 66
Tölvupóstur: soleyjons@hr.is

www.opnihaskolinn.is

*Vinsamlegast athugið að ekki er hægt að fella niður greiðsluseðil eftir að nám er hafið. Tilkynna skal forföll skriflega til umsjónarmanns námskeiðsins. Nánar um greiðsluskilmála hér.

Efnisvalmynd

 


 

Eining
FacebookTweetEmailShare

 






 









Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica