Mælingar á árangri

Fyrir hverja?

Fyrir mannauðsstjóra, fræðslustjóra, aðra stjórnendur og alla þá sem vilja öðlast meiri skilning á mikilvægi mælinga í mannauðsstjórnun.

 

Námskeiðslýsing

Farið verður yfir þá þætti sem snúa að mælingum á árangri. Fjallað verður um mikilvægi þess að skilgreina árangur og hvernig hann lítur út í hverju tilviki fyrir sig. Hvað er það sem hvetur starfsmenn áfram í vinnu sinni? Hvað getum við sem stjórnendur gert til að laða fram það besta í okkar starfsmönnum?

Á námskeiðinu vinnum við með aðferðir sem snúa að því að finna mælikvarða sem henta og hvernig við getum með réttum aðferðum náð þeim mælikvörðum. Lögð er áhersla á að þátttakendur skilji hvernig hægt er að beita þessum aðferðum í þeim málum sem þeir eru að kljást við. Fjallað verður um hvernig við náum settum markmiðum á meðan önnur reynast okkur erfiðari.

Helstu viðfangsefni:

- Mælingar á árangri

- Skýr skilgreining á markmiðum og árangri

- Hvatning til starfsmanna

- Skilningur á því hvað það er sem hvetur starfsmenn

Leiðbeinandi:

Íris Ösp Bergþórsdóttir, B.Sc. í sálfræði og starfandi mannauðsráðgjafi hjá Íslandsbanka.

Fyrirkomulag

Tími: Þriðjudagur 27. mars og fimmtudagur 29. mars frá kl. 13.00-16.00

Lengd: 6 klukkustundir

Staðsetning: Háskólinn í Reykjavík, Menntavegi 1

Verð: 35.000,- kr

 

Nánari upplýsingar

saerunoskOHSærún Ósk Pálmadóttir
Verkefnafulltrúi
S. 599 6342
saerunosk@ru.is
www.opnihaskolinn.is


 







Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica