Mælingar í markaðsmálum

Markaðskennitölur

Fyrir hverja

Námskeið fyrir markaðsstjóra og aðra sem vinna að markaðsmálum og vilja mæla og meta áhrif markaðssetningar.

Námskeiðslýsing

Hér eru kynntar „kennitölur“ til markaðsgreininga sem auðvelda markaðsstjórum að meta betur árangurstengdar niðurstöður úr markaðsmálum. Skoðuð nauðsynleg sniðmát „template“ og tól til greiningar fyrir reglubundnar mælingar í markaðsmálum. Hvernig gröf og samanburður geta auðveldað yfirsýn og aðgengi til að sporna við óæskilega þróun í markaðsmálum, t.a.m. á neytendahegðun, við stefnumótun og áætlanagerð.

Farið yfir „know-how“ og „best practice“ á mælingum, hvaða „Key Performance Indicator“ (KPI‘s) geta hentað til mælinga í markaðsdeild viðkomandi fyrirtækis svo og að mæla og meta áhrif markaðssetningarinnar. Námskeiðið er í anda „how to do it“ kúrsa.

Þátttakendur fá innsýn í hvaða þættir skipta máli til að byggja upp markaðshneigt fyrirtæki sem getur gert grein árangri þess fjármagns sem varið er í markaðsmál. Þetta leiðir til lærdóms um hvað virkar og hvað ekki í hverju tilviki fyrir sig.

Helstu viðfangsefni

  • Kynning á gagnamiðaðri markaðssetningu og fjallað um nauðsyn þess að markaðsfólk hætti að láta hugboð ein og sér ráða ferðinni.
  • Farið yfir helstu mælingar og kennitölur sem notaðar eru í markaðsfræði.
  • Fjallað um það hvernig markaðsmálum er háttað hjá árangursríkum fyrirtækjum.
  • Nauðsyn þess að fyrirtæki mæli árangurinn af markaðsaðgerðum og fjallað um tækifæri og ógnanir í því sambandi.
  • Hvernig markaðsfræðingar geta skapað sér forskot á markaði með því að tileinka sér enn meiri mælingahneigð, sem og styrkt stöðu sína innan fyrirtækisins.

Leiðbeinandi

Valdimar Sigurðsson, Principal research Fellow & the Nova chair of Marketing. Forstöðumaður rannsókna og doktorsnáms hjá Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík.  Hann er með doktorspróf (Ph.D.) í markaðsfræði með áherslu á neytendasálfræði frá Cardiff Business School, Cardiff University, Wales, Bretlandi.  Sérsvið hans eru:

 

  • Neytendaatferlisfræði; neytendasálfræði
  • Gagnkvæmi neytenda og markaðsaðila. Markaðssetining í smásölu, sérstaklega markaðssetning hollra matvæla.
  • Vettvangstilraunir í verslununum, hlutfallslegar sölu, samsvörunar- og eftirspurnargreiningar
  • Rannsóknir í markaðsfræði, markaðsrannsóknir
  • Markaðsráðar og víxlverkun vörumerkja
  • Hagfræðileg sálfræði/atferlishagfræði

 

Fyrirkomulag

Verð: 29.500 kr.

Tími: 6 klst.

Staðsetning: Háskólinn í Reykjavík, Menntavegi 1

 

Nánari upplýsingar

Sigríður Soffía Sigurjónsdóttir

Sími: 599 6261

Netfang: sigridurs@ru.is

 

 

Nauðsynlegar upplýsingar við skráningu eru:

  • Fullt nafn
  • Kennitala
  • Símanúmer
  • Tölvupóstfang
  • Fullt nafn, kennitala og heimilisfang greiðanda ef annar en þátttakandi

*Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fella niður greiðsluseðil eftir að nám er hafið. Tilkynna skal forföll skriflega til umsjónarmanns námskeiðsins. Nánar um greiðsluskilmála hér.

 








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica