Að leysa vandmeðfarin starfsmannamál með jákvæðum aðferðum
SKRÁNING HÉR
Fyrir hverja
Námskeið fyrir stjórnendur sem vilja leysa erfið starfsmannamál á farsælan hátt.
Námskeiðslýsing
Á námskeiðinu er skoðaður hinn breiði málaflokkur sem mannauðsmál ná til. Horft er til áhrifa persónulegra erfiðleika á starfsumhverfi og metnað. Tekið er bæði á jákvæðum og neikvæðum hliðum starfsmannamála og úrlausnum tengdum þeim. Horft er til þeirra breyttu áherslna sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir varðandi starfsmannatengd málefni. Jafnframt er ákjósanleg frammistaða starfsmanna skoðuð, sem og frávik frá henni; mögulegir áhrifavaldar auk þess hvað fyrirtækið getur gert til að fyrirbyggja slaka frammistöðu.
Farið er í mælingar á frammistöðu, umbunarkerfi og hvata til að efla framleiðni, auk „jákvæðnis-stuðla“ sem nýst geta við að umbreyta erfiðum straumum í jákvæða.
Helstu viðfangsefni
- Neikvæðar og jákvæðar hliðar starfsmannamála
- Áföll í fyrirtækinu - Áföll starfsmanna
- Viðbrögð við áföllum – Fimm stig
- Leiðir til úrbóta
- Óásættanleg frammistaða starfsmanna
- Persónulegir erfiðleikar starfsmanna (t.d. gjaldþrot, atvinnuleysi maka, þunglyndi)
- Veikindadagar og fjarvistir
- Hrós, hvati og endurgjöf
- Jafningjastjórnun og breytingastjórnun
- Jákvæð fyrirtækjamenning
- Uppbygging trausts
Þátttakendur fá innsýn í margvíslegar birtingarmyndir krefjandi og erfiðra starfsmannamála, sem og leiðir til að taka jákvætt á þeim og byggja upp meðbyr og jákvæðni.
Leiðbeinandi
Gunnhildur Arnardóttir er framkvæmdastjóri Stjórnvísi sem er “non profit” þekkingarfélag sem þjónar mannauði íslensks atvinnulífs. Einnig á hún og rekur fyrirtækið CEO-HUXUN sem er forstjóra- og framkvæmdastjóraráðgjöf. Gunnhildi var á þessu ári veitt viðurkenning af forseta Íslands sem Mannauðsstjóri ársins og í fyrra hlaut fyrirtækið sem hún vann hjá Starfsmenntaverðlaunin. Gunnhildur hefur áratugareynslu af stjórnun og hefur starfað sem framkvæmdastjóri starfsmannasviðs hjá Securitas, Zoom og Samvinnuferðum Landsýn. Einnig vann hún hjá Prentsmiðjunni Odda sem aðalbókari til margra ára.
Gunnhildur er með MBA próf frá Háskólanum í Reykjavík. Gunnhildur var í Verzlunarskóla Íslands og útskrifaðist þaðan með verslunarskólapróf árið 1976 og stúdentspróf frá MH 1981. Hún stundaði Stjórnmálafræði við HÍ og er með BS próf í Viðskiptafræði frá HR.
Kennslufyrirkomulag
Tími: Mánudaginn 7. og miðvikudaginn 9. maí 2012 frá kl. 13.30-16.30.
Lengd: 6 klst.
Staðsetning: Opni háskólinn í Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1, 101 Reykjavík.
Verð: 29.500,- kr*
Frekari upplýsingar
Særún Ósk Pálmadóttir
Verkefnafulltrúi
Sími: 599 6342
Netfang: saerunosk@ru.is
www.opnihaskolinn.is
*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

