Hvatning og endurgjöf

Bestu aðferðir til að hvetja til árangurs

 

Fyrir hverja

Námskeið fyrir stjórnendur sem vilja öðlast meiri skilning á mikilvægi hvatningar og  endurgjafar þegar móta á hegðun.

Námskeiðslýsing

Fjallað verður um skilgreiningar á hvatningu og endurgjöf til að þátttakendur skilji betur hvenær starfsmenn upplifa að þeim sé hrósað og hvenær er verið að gagnrýna eða gefa beina endurgjöf. Endurgjöf er eitt öflugasta tæki sem stjórnendur hafa til að hafa áhrif á hegðun fólks; að leiðrétta neikvæða hegðun og styrkja jákvæða. Ef endurgjöf er beitt markvisst á vinnustað getur það verið áhrifarík leið til að móta og skapa aukna starfsánægju.Tengsl hvatningar við starfsánægju og fyrirtækjamenningu verður skoðuð auk skilnings á því hvað drífur fólk áfram. Sérstök áhersla verður lögð á forsendur árangursríkrar endurgjafar, aðferðir við endurgjöf og umbun. Hlutverk stjórnandans að hafa áhrif á hegðun samstarfsfólks verður kynnt og fjallað um helstu verkfæri stjórnandans í þeirri viðleitni. Að lokum verður gerð grein fyrir þeim vinnubrögðum sem sýnt hefur verið að greini góða stjórnendur frá þeim sem ná síður árangri. 



Helstu viðfangsefni: 

Ávinningur starfsánægju    

Hvatning & endurgjöf     

Leiðrétt hegðun: úr óæskilegri í æskilega hegðun

Tengsl hvatningar við starfsánægju

Kenningar um hvatningu og endurgjöf

Aðferðir við endurgjöf og hvatningu

Helstu verkfæri stjórnandans til árangurs 

Rætt verður um íslenskan vinnumarkað og sýnd dæmi um hvatningu og hrós á tímum breytinga.  Þátttakendur fá aukna dýpt á
hvernig megi markvisst nota hvatningu og endurgjöf til að hafa áhrif á hegðun samstarfsfólks og um leið auka starfsánægju og framleiðni.

Leiðbeinandi

Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir

Fyrirkomulag

Dagsetning væntanleg!

Lengd: 6 klukkustundir

Staðsetning: Háskólinn í Reykjavík, Menntavegi 1

Verð: 29.500,- kr*

 

 
Nánari upplýsingar

SoleySóley Jónsdóttir
Verkefnastjóri
Sími: 599 6341
Netfang: soleyjons@ru.is
www.opnihaskolinn.is


*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds

Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.

Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála







Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica