Morgunverðarerindi
Stjórnendum fyrirtækja er boðið að sækja morgunverðarfundi, þeim að kostnaðarlausu.
Tilgangur fundanna er að kynna nokkra af þeim fyrirlesurum sem Opni háskólinn hefur upp á að bjóða og fá stjórnendur til að hittast og hlýða á áhugaverð erindi. Það er von okkar að hér finni þeir vettvang til skoðanaskipta, umræðu og að nálgast viðfangsefni á nýjan hátt.
Fyrirlesarar eru allir sérfræðingar á sínu sviði og deila með okkur sínum áherslum á umræðuefni sínu.
Dagskrá Gull í mund
12. apríl 2012kl. 9:00-10:00 - Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Mentor og Mats Rosenkvist, framkvæmdastjóri InfoMentor í Svíþjóð
SKRÁNING FER FRAM HÉR
Nánari upplýsingar veitir:
Særún Ósk Pálmadóttir
Verkefnastjóri
Sími: 599 6342
Netfang: saerunosk@ru.is

