Einföld leið að betri árangri í rekstri
Farið verður yfir kröfur ISO 9001:2008 staðalsins sem felur m.a. í sér hugtakið um gæði í fyrirtækinu, gæðahringinn, verkferla,
flæðirit, gæðaeftirlit þ.m.t. innri og ytri úttektir, mikilvægi þátttöku allra starfsmanna og innleiðingu gæðahugsunar.
Lögð verða fyrir verkefni í tíma sem og á milli tíma sem lúta að gerð gæðastefnu og innleiðingu á gæðastjórnun. Námskeiðið byggir á virkri þátttöku nemenda.
Leiðbeinandi: Anna María Þorvaldsdóttir frá AMT Markþjálfun og ráðgjöf. Anna María er með 11 ára starfsreynslu í mannauðs- og gæðastjórnun.
Dagsetning: 31. janúar og 2. febrúar 2012
Stund: Kennt er í 8 klst á tveimur dögum, frá kl. 9-13 báða dagana
Verð: 40.000 kr.* (innifalið í verði eru léttar veitingar)
Staður: Opni háskólinn í HR, 2. hæð - Mars álma
Nánari upplýsingar veitir
Særún Ósk Pálmadóttir
Verkefnastjóri Opna háskólans
Sími: 599 6342
Netfang: saerunosk@ru.is
Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
*Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

