Stjórnun og forysta í ferðaþjónustu

Haldið í samvinnu við Samtök ferðaþjónustunnar

Námskeiðin hefjast í október 2011.

Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið í Opna háskólanum í Reykjavík

Markmið námsins eru að

  • Efla almenna stjórnunar- og leiðtogahæfni þátttakenda
  • Veita stjórnendum betri skilning á eigin stjórnunarstíl 
  • Kynna hagnýtar og sannreyndar aðferðir og vinnubrögð sem ýta undir stjórnunarlegan árangur
  • Skapa sameiginlegan vettvang til tenglsamyndunar milli stjórnenda í ferðaþjónustu.   

Námið samanstendur af eftirfarandi námskeiðum

  1.  Forysta til framfara í ferðaþjónustu
  2. Áskoranir og árangur í stjórnun starfsmannamála
  3. Samningatækni
  4. Samkeppnisforskot með markvissu markaðsstarfi
  5. Fjármál

Skipulag námsins

Námið fer fram með sjálfsmati, fyrirlestrum, umræðum, myndböndum, verkefnum, vinnuhópum og þrautum. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í formi umræðu og verkefnisvinnu. Námið er að hluta byggt á umræðuverkefnum (case-studies) sem eru raunsannar lýsingar á vandamálum sem stjórnendur í ferðaþjónustu hafa staðið frammi fyrir og eru þau verkefni nýtt sem grundvöllur skoðanaskipta og úrlausnar vandamála. Ekki er krafist heimavinnu á namskeiðunum né próftöku í lokin.

Allir leiðbeinendur í náminu eru viðurkenndir sérfræðingar á viðkomandi sviði með víðtæka reynslu af stjórnendafræðslu og ráðgjöf. 

Kennt er einu sinni í mánuði, einn, eða einn og hálfan, dag í senn.

 Nánari lýsingar á námskeiðum

 

1. Forysta til framfara í ferðaþjónustu

Tímafjöldi:  12 klst.
Reykjavík:   19. og 20. október 2011
Leiðbeinendur:  Guðrún Högnadóttir og Margrét Jónsdóttir

Fjallað verður um lykilhlutverk og helstu áskoranir í starfi stjórnenda í ferðaþjónustu.  Rætt verður um þær áskoranir semstjórnendur og leiðtogar munu mæta á komandi árum.  Áhersla er lögð á að miðla ákveðnum vinnubrögðum sem munu koma til með að styrkja og þróa leiðtogahæfileika þátttakenda, ásamt því að þróa getu þeirra til að skapa sterka og drífandi liðsheild. 

Rætt verður um lykilhlutverk leiðtoga í liðs- og skipuheildum.  Rýnt verður í þá eiginleika sem eru samnefnari árangurs, fjallað verður um einkenni forystu í sögulegu og fræðilegu samhengi, og gluggað verður í nýlegar rannsóknir, stefnur og strauma í leiðtogafræðum.  Áfanginn veitir fræðilega, praktíska og persónulega innsýn í hugarheim og áhrif leiðtoga.  Stuðst verður við bók Bennis et al. "Becoming a leader - a workbook"

Þátttakendur munu: 

  • Auka leiðtogahæfileika sína  og læra að miðla hæfileikunum til annarra
  • Fara í gegnum æfingar sem miða að því að auka/bæta leiðtogahæfni
  • Kynnt verða ýmis hugtök og rannsóknir tengdar ákvörðunarfræðunum
  • Þróa með sér mismunandi leiðtogastíl við fjölbreyttar aðstæður og verkefni
  • Auka leiðtogahæfni við ákvarðanatöku og lausn verkefna


Háskólinn í Reykjavík hefur um árabil stuðst við greiningartæki Team Management System (TMS) við greiningu stjórnendahópa.  TMS gefur þátttakendum tækifæri til að meta með heildrænum hætti eigin styrkleika og veikleika sem leiðtogar og greina mismunandi hlutverk þeirra innan hópa.  TMS hefur verið notað um allan heim í opinberum rekstri og einkarekstri og reynst sérlega vel við íslenskar aðstæður.

Með því að svara rafrænum spurningalista, sem tekur um hálftíma, gefst verðmæt svipmynd af leiðtogaeiginleikum viðkomandi m.a. út frá persónulegri hæfni, viðhorfum, samvinnu og samskiptum.  Hver stjórnandi fær sjálfsmatsskýrslu TMS sem gefur m.a. innsýn inn í hvernig stjórnendur:

  • Kjósa að eiga samskipti við fólk
  • Afla og nota upplýsingar
  • Taka ákvarðanir
  • Skipuleggja sig og aðra

Niðurstöður úr TMS gefa einstaklingum vísbendingu um hvernig sé best að miðla upplýsingum til annarra, hvernig sé best að sannfæra þá og vekja áhuga og eldmóð.  Annar mikilvægur kostur TMS er að það veitir starfsmönnum og stjórnendum hlutlaus hugtök til að ræða hvernig og hvers vegna það nálgast vinnu á mismundi hátt.  Í viðauka 1 er að finna nánari lýsingu á TMS prófinu.

Guðrún Högnadóttir er framkvæmdastjóri Opna háskólans í HR og aðjúnkt við viðskiptadeild skólans, auk þess að leiða samstarf við lausnir Franklin Covey á Íslandi. Guðrún hefur starfað við stjórnunarráðgjöf síðan 1998 einkum á sviði stefnumótunar, skipulags- og mannauðsmála og gæðastjórnunar. Hún var einn meðeiganda IMG Ráðgjafar áður Deloitte & Touche Ráðgjöf. Hún var fræðslustjóri Ríkisspítala og forstöðumaður gæða- og þróunarskorar Landspítalans á árunum 1991 til 1997.

Margrét Jónsdóttir er forstöðumaður alþjóðaskrifstofu skólans og dósent við spænsku við HR.
Margrét er með MBA próf frá Háskólanum í Reykjavík og doktorsgráðu  í spænskum bókmenntum frá Princeton University. Margrét er alin upp í ferðaþjónustu og er leiðsögumaður frá Leiðsögumannaskólanum. Hún vann sem fararstjóri og leiðsögumaður frá árunum 1986-1993 jafnt á Íslandi sem erlendis. Margrét er viðurkenndur þjálfari í TMS og hefur mikla reynslu af að lesa úr niðurstöðum TMS prófa.

 

2. Áskoranir og árangur í stjórnun starfsmannamála

 

Tímafjöldi:  12 klst.
Reykjavík:   23. og 24. nóvember 2011
Leiðbeinandi:  Arney Einarsdóttir

Fjallað verður um hlutverk og stöðu stjórnandans í hverjum starfsmannahópi og þau áhrif sem hegðun hans/hennar hefur á hópinn.  Einblínt verður á mikilvægi þess að raða réttu fólki í réttar stöður, rætt verður um innra hvatningargildi starfa og nýtingu hópastarfs.  Einnig verður fjallað um þátt frammistöðumats og viðurkenningar í áhugahvöt starfsmanna. Skoðað hvernig taka megi á erfiðum starfsmannamálum, leysa úr ágreiningi og byggja upp traust milli starfsmanna og stjórnenda. Sérstaklega verður farið í starfsánægju, orsakir hennar og afleiðingar, og áhrif tilfinninga á stjórnun og samskipti á vinnustöðum. 

Unnið er með raunveruleg dæmi og umræðan tengd við tæki og aðferðir sem eru gagnlegar við mismunandi aðstæður sem koma upp. Markmiðið er að stjórnendur verði færir um að beita helstu tækjum mannauðsstjórnunar til að  nýta mannauðinn betur og ná þannig enn betri árangri í rekstri.

Arney Einarsdóttir.  Arney hefur víðtæka reynslu af stjórnun, rekstri, kennslu, rannsóknum og ráðgjöf á sviði starfsmanna-, gæða- og ferðamála. Arney lauk M.A. prófi í viðskiptafræði með áherslu á mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands árið 2004. Lokaverkefni hennar ber yfirskriftina Áhrifavaldar starfsánægju og hvatningar - íslensk stöðlun og prófun á Evrópsku starfsánægjuvísitölunni og fólst m.a. í þýðingu, prófun og staðfærslu á mælitæki Evrópsku starfsánægjuvísitölunnar (European Employee Index).  Arney starfar einnig sem lektor við Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og vinnur þar við kennslu og að alþjóðlegri rannsókn á sviði

mannauðsmála, CRANET. Arney er með B.S. próf í hótel- veitingarekstri og ferðamálum með viðskiptafræði sem aukagrein, frá California State Polytechnic University, Pomona (1990). Arney starfaði sjálfstætt sem verkefnisstjóri og ráðgjafi samhliða meistaranámi í viðskiptafræði og kennslu við Ferðamálaskólann í Kópavogi frá 2002 til 2004. Arney stofnaði og starfaði sem framkvæmdastjóri almannatengsla- og verkefnisstjórnunarfyrirtækisins Umsjón-verkefnastjórnun frá 1999-2001. Þar stýrði hún einnig ýmsum almannatengsla- og stefnumótunarverkefnum og veitti fyrirtækjum ráðgjöf á því sviði

 

3. Samningatækni


Tímafjöldi:  8 klst.
Reykjavík:  21. desember 2011
Leiðbeinendur: Aðalsteinn Leifsson

Samningagerð og ákvörðunartaka kemur við sögu á hverjum degi í starfi allra stjórnenda – gagnvart samstarfsfólki, viðskiptavinum og fjölskyldunni. Hvernig til tekst skiptir miklu máli fyrir velgengni stjórnanda og viðkomandi fyrirtækis. Góð ákvörðunartaka krefst engra sérstakra persónueiginleika eða bellibragða heldur geta allir bætt árangur sinn umtalsvert með því að beita einföldum grundvallarreglum og vinnuaðferðum.

Færni lærist ekki af fyrirlestrum heldur með æfingu og heiðarlegri endurgjöf í afslöppuðu og opnu umhverfi. Í vinnustofunni takast þátttakendur á við hagnýtar æfingar í samningatækni sem kristalla þær grundvallaráskoranir sem samningamenn standa frammi fyrir – og fá endurgjöf úr æfingunni sjálfri, frá mótaðilum og frá leiðbeinanda. Þátttakendur fá lesefni og hagnýtar æfingar. Ennfremur er þeim send spurningakönnun á netinu fyrir námskeiðið – bæði til að leiðbeinendur geti aðlagað efnið viðkomandi hóp og til þess að fá fram undirliggjandi viðhorf gagnvart sölu og samningum.

Aðalsteinn Leifsson er lektor við viðskiptafræðideild Háskólans í Reykjavík. Aðalsteinn Leifsson starfaði m.a. fyrir Evrópusambandið (ESB), EFTA og utanríkisráðuneytið áður en hann hóf störf við HR,  þar sem hann leggur nú stund á doktorsnám. Hann hefur MBA-gráðu frá Edinburgh Business School, MSc. í alþjóðastjórnmálum frá London School of Economics and Political Science (LSE) og BA-próf í stjórnmála- og fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands. Sérsvið Aðalsteins eru samningatækni, alþjóðaviðskipti, Evrópusamvinna og fjölhliða- og tvíhliða fríverslunarsamningar.

 

4. Samkeppnisforskot með markvissu markaðsstarfi

 

Tímafjöldi:  8 klst.
Reykjavík:  25. janúar 2012
Leiðbeinandi:  Halldór Örn Engilbertsson

Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur öðlist skilning á grunnhugtökum markaðsfræðinnar og öðlist færni í notkun markaðsaðgerða sem bætt geta samkeppnisstöðu fyrirtækja.

Fjallað verður um hverju þarf að huga að þegar markaðsstefna er mörkuð (vara, verðlagning, staðsetning og auglýsingar) – rætt verður um sérstöðu fyrirtækisins, samkeppnishæfni og hegðun neytenda. Lögð er áhersla á að þátttakendur geri sér grein fyrir þeirri hugmyndafræði sem liggur á bak við vörumerki (brand) fyrirtækisins og sjái mikilvægi þess að dagleg starfsemi og hegðun starfsmanna endurspegli gildi vörumerkisins. Gerð verða skil á mikilvægi markaðshneigðar (e. marketing orientation) hjá fyrirtækjum og stjórnun þeirra í því samhengi. 

Halldór Örn Engilbertsson er aðjúnkt í markaðsfræðum við Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Hann hefur undanfarin fjögur ár kennt margvísleg námskeið í markaðsfræðum og einnig stundað rannsóknir á sviði markaðsmála og neytendahegðunar. Hann starfaði sem markaðsstjóri hjá Norsk Bokforlag í Noregi á árunum 1999-2002. Halldór hefur einnig veit ýmsum aðilum markaðs- og stefnumótunarráðgjöf og situr nú í stjórn Evrópsku markaðsakademíunnar. Sérsvið Halldórs er stefnumótun markaðsmála, árangursmælikvarðar og markaðssamskipti

 

5. Fjármál


Tímafjöldi:  8 klst.
Reykjavík:  15. febrúar 2012
Leiðbeinandi: Almar Guðmundsson

Tilgangur námsskeiðsins er að veita stjórnendum í ferðaþjónustu innsýn í fjármálastjórnun fyrirtækja í ferðaþjónustu. Fjallað verður um þær upplýsingar sem nauðsynlegt er að stjórnendur hafi á takteinum auk þess að fjallað er um þær upplýsingar sem gott er að hafa aðgang að. Jafnframt er fjallað um fjárhagslega ferla og aðferðir sem beitt er við upplýsingaöflun, upplýsingamiðlun og framsetningu upplýsinga.

Fjallað er um stefnumótun, markmiðasetningu og áætlanagerð til lengri og skemmri tíma. Sérstök áhersla er lögð á stýringu veltufjármuna og mikilvægi þeirra í rekstri fyrirtækis. Fjallað er um fjármögnun fyrirtækja, mismunandi tegund fjármögnunar og aðgengi fjármögnunar. Veitt verður innsýn í áhættustýringu m.a. gjaldeyrisáhættu.

Veitt er innsýn í kostnaðargreiningu með áherslu á hvernig nýta má hana til verðlagningar vöru og þjónustu.

 

VERÐ OG UMFANG:

 

Verð:   198.000 kr.

Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið í Reykjavík

 

Innifalið:
• Vinnufundir verkefnastjóra og leiðbeinenda auk undirbúningsfunda
• Hönnun námskeiða og rannsóknir er að þeim lúta
• Kennsla og aðstoð við þátttakendur
• Námsgögn og ítarefni
• Kaffiveitingar
• Kennsluaðstaða í Háskólanum í Reykjavík

Við viljum vekja athygli á að námssjóðir verkalýðs- og fagfélaga styrkja námið. Ef þú þarft aðstoð við að sækja um styrk hafðu þá samband við verkefnastjóra.

 

Nánari upplýsingar

Særún Ósk Pálmadóttir

Sími: 599 6342
Netfang: saerunosk@ru.is

 

Nauðsynlegar upplýsingar við skráningu eru:

  • Fullt nafn
  • Kennitala
  • Símanúmer
  • Tölvupóstfang
  • Fullt nafn, kennitala og heimilisfang greiðanda ef annar en þátttakandi

*Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fella niður greiðsluseðil eftir að nám er hafið. Tilkynna skal forföll skriflega til umsjónarmanns námskeiðsins. Nánar um greiðsluskilmála hér.

 

 







Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica