Fjármál-skilningur, greining og fjárfestingar

Fjármál - skilningur, greining og fjárfestingar

Fyrir hverja

Þessi námskeiðslína er fyrir stjórnendur sem ekki hafa menntun á sviði fjármála og vilja auka við þekkingu sína á því sviði. Einnig fyrir þá sem vilja rifja upp og skerpa á þekkingu sinni.

Námskeiðslýsing

Námskeiðslínan skiptist í þrennt og er hver hluti 4 klukkustundir.

Þar er fjallað um eftirfarandi:

1. Arðsemi fjármagns og fjárflæðis. Algengustu mælingar á arðsemi og ákvörðun ávöxtunarkröfu. Tegundir fjármögnunar, svo sem skuldabréf og eigið fé.

2. Verðmat fyrirtækja, sjóðstreymisflæði, kennitölumat og aðrar aðferðir

3. Ársreikningar og notkun á upplýsingum sem í þeim eru. Rekstrarreikningur, sjóðstreymi og mat eigna í efnahagsreikningi.  Tekjuskattur og tekjuskattsinneignir

 

Nánari lýsingar á hverjum hluta:

1) Arðsemi og nýting fjármagns er mjög mikilvægur hlutur. Einnig þarf að hafa skilning á því hjá þeim sem taka fjárfestingarákvarðanir, að samsvörun þarf að vera milli ávöxtunar og áhættu. Því er nauðsynlegt að algengustu atriði sem koma til skoðunar þegar ávöxtunarkrafa er metin liggi fyrir, sem og aðferðir við mælingu á arðsemi.  

Fjármögnun getur verið af ýmsu tagi og er misdýr og mishentug þar sem fjármögnun með lánum þarf að haldast í hendur við áætlað fjárflæði sem notað verður til að greiða vexti af viðkomandi fjármögnun og standa undir afborgunum. Útreikningar á þessum þáttum verður teknir fyrir með skýrum hætti.

 

2) Mat á virði fyrirtækja eða annarra verkefna er mjög mikilvægt og nauðsynlegt að mælanleikinn sé fyrir hendi í formi ávöxtunarkröfu og þekkingar á áætluðu fjárstreymi. Verðmöt fyrirtækja byggja á þessu og eru nokkrar tegundir fyrir hendi er varða þetta atriði. Þessi hluti námskeiðsins tekur fyrir verðmat byggt á væntu sjóðstreymi rekstrar sem og mat á virði eiginfjár út frá virði rekstrarins. Kennitölur eru einnig oft notaðar einar og sér við verðmöt eða samhliða og til mats á niðurstöðu sjóðflæðismatinu.   Einnig eru til nokkrar aðrar matsaðferðir sem farið verður yfir.

  

3) Ársreikningar eru heildarfrásögn af afkomumælingu yfir ákveðið tímabil og mat eigna og skulda á ákveðnum tímapunkti.    Farið verður yfir samspil rekstrarreiknings og efnahagsreiknings við sjóðstreymi sem er mjög mikilvægt í ársreikningnum.  Samspil þarna á milli verður tekið mjög vel fyrir og áhrif hvers liðar innan reksturs og efnahags á sjóðstreymið. Mat á eignum í efnahagsreikningi og framsetning þeirra upplýsinga fylgir ákveðnum reglum og verður farið í gegnum það. Tengsl matsverðsins við aðferðir verðmats á félaginu sjálfu verður sýnt. Mikilvægur liður í efnahagsreikningum ýmissa félaga er því miður í dag orðið mikilvægt í formi tekjuskattsinneignar. Framsetning og mat á þeirri eign verður sýnt, sem og helstu atriði í útreikningi á tekjuskatti lögaðila (ehf/hf) og framsetning og útreikningur á einfaldri tekjuskattsskuldbindingu.

Leiðbeinandi

Kristján M. Bragason, Partner - PriceWaterhouseCoopers.

kristjan.m.bragason@is.pwc.com

Fyrirkomulag

Námskeiðið verður kennt miðvikudagana 1., 8. og 15. febrúar 2012 frá kl. 9-13.

Lengd: Tími: 3 x 4 klst. = 12 klst.

Staðsetning: Opni háskólinn, Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1. Mars-álma, 2. hæð

Verð: 52.000,- kr* 

Nánari upplýsingar

saerunoskOHSærún Ósk Pálmadóttir
Verkefnafulltrúi
Sími: 599 6342
Netfang: saerunosk@ru.is
www.opnihaskolinn.is

www.facebook.com/opnihaskolinn

 

 *Forföll og innheimta námskeiðsgjalds

Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.

Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála







Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica