Öflug stýring og yfirsýn fjármála
Fyrir hverja
Námskeið fyrir þá sem sinna daglegum störfum í fjármáladeildum fyrirtækja og hafa einungis grunnþekkingu á fjármálum, en þurfa samt að fást við ýmsar fjármálalegar greiningar og framsetningu gagna.
DAGSETNINGAR KYNNTAR SÍÐAR
Námskeiðslýsing
Á námskeiðinu verður farið ítarlega í helstu atriði skilvirkrar fjármálastjórnunar og hvernig hægt er að nota Excel til að leysa og setja fram fjármálaleg viðfangsefni og afstemmingar. Farið verður í aðfangakostnað og kostnaðargreiningu í framleiðslufyrirtækjum, fjárfestingarákvarðanir, lánaútreikninga, sviðmyndir og mat á sjóðstreymi. Einnig verður lögð áhersla á góða framsetningu á gögnum, s.s. töflum og gröfum, með hliðsjón af því sem tíðkast á fjárfestakynningum.
Meðal annars er komið að „conditional formatting“, röðun (sort), uppfletting (Vlookup), gröf og linkar milli skjala (sheets) fjármálaföll (NPV, PMT, IRR, PV, FV ofl.), „Group“ og „filter“, tenging textastrengja og talna, „data validation“ auk „solver“ og „what-if“ greiningar.
Helstu viðfangsefni
- Afstemmingar
- Sjóðstreymi og rekstraráhætta
- Stjórnun birgða og viðskiptakrafna
- Kostnaðargreining í framleiðslu
- Framlegðarhlutföll og rekstrarkostnaður
- Ákvörðunartaka með sviðsmyndum
- Framsetning á töflum og gröfum
- Fjárfestingarákvarðanir
- Ákvarðanir um skuldsetningu og lánasamsetningu
Að námskeiðinu loknu ættu þátttakendur að hafa góðan skilning á helstu þáttum fjármálastjórnunar og hvernig hægt er að nýta Excel til að auðvelda sér þá vinnu.
Leiðbeinandi
Sigurður Erlingsson, MBA og M.Sc. í fjármálum er leiðbeinandi á þessu námskeiði. Sigurður hefur mikla reynslu úr atvinnulífinu af störfum við bókhald, fjármál, stjórnun og fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Hann hefur í hartnær áratug kennt fjölda námskeiða á sviði fjármála m.a. sem stundakennari við viðskiptadeild HR. Sérsvið Sigurðar eru fyrirtækjafjármál, fjármálamarkaðir og stjórnun.
Fyrirkomulag
Dagsetningar kynntar síðar
Lengd: 12 klst.
Staðsetning: Háskólinn í Reykjavík, Menntavegi 1
Verð: 52.000,- kr*
Nánari upplýsingar
Særún Ósk Pálmadóttir
Verkefnafulltrúi
Sími: 599 6342
Netfang: saerunosk@ru.is
*Forföll og innheimta námskeiðsgjalds
Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeið. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta fullt námskeiðsgjald á námskeið sem eru 4-16 klst. að lengd ef þátttakandi skráir sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeiðið hefst. Úrsagnir úr námskeiðum skulu ávallt fara fram skriflega.
Opni háskólinn hvetur umsækjendur til þess að kynna sér greiðsluskilmála Opna háskólans áður en sótt er um í námið. Sjá greiðsluskilmála

