Að laða fram það besta með aðferðum markþjálfunar
Dagana 22. og 23. febrúar 2012
The Coaching Clinic er tveggja daga þjálfun fyrir stjórnendur í hugmynda- og aðferðafræði markþjálfunar (coaching).
Á þessari áhrifaríku vinnustofu verður kynnt aðferðafræði “coaching” (markþjálfunar) sem er talin ein árangursríkasta leiðin að farsælum samskiptum og hvatningu sérfræðinga, stjórnenda og starfsmanna. Þátttakendum verður veitt innsýn í hugmynda- og aðferðafræði markþjálfunar (executive coaching) og fá hagnýta þjálfun í að leiða einstaklinga og teymi til bættrar frammistöðu.
Coaching
Markþjálfun miðar að því að hámarka getu og laða fram kjörframmistöðu einstaklinga í lífi og starfi. Um er að ræða skilvirka aðferð við stjórnun og dagleg samskipti sem eflir stjórnendur og starfsmenn í að nýta sem best faglega þekkingu sína og persónulegan styrk við úrlausn daglegra verkefna í vinnu.
Markmið
Markmið þjálfunarinnar eru eftirfarandi:
1. Að veita þátttakendum hagnýta innsýn í nýjungar og “best practices” á sviði leiðtogaþjálfunar.
2. Að þjálfa lykilstarfsfólk í aðferðafræði markþjálfunar og veita því tækifæri til beita nýrri færni við dagleg störf.
3. Að virkja og varðveita frumkvæði starfsmanna og vinna að stöðugum umbótum með sannreyndum og áhrifaríkum aðferðum.
4. Að þróa og styðja við frumkvöðlastarf á sviði internal coaching.
Umgjörð
Um er að ræða tveggja daga námskeið frá Corporate Coach U (CCU) samkvæmt námskeiðslýsingu og dagskrá hér að neðan. Námskeiðið verður haldið í Háskólanum í Reykjavík fyrir takmarkaðan fjölda þátttakenda.
Coaching Clinic® er kennt af Guðrúnu Högnadóttur, sem er viðurkenndur þjálfari frá CCU (Licenced facilitator) og ACC markþjálfi og hefur starfað um árabil með íslenskum og erlendum stjórnendum.
Ávinningur
Um er að ræða mjög krefjandi þjálfun sem krefst mikillar þátttöku og athygli þátttakenda. Kennsla fer fram með fyrirlestrum, verklegum æfingum, sjálfsmati, lausn verkefna og umræðum.
Á námskeiðinu gefst þátttakendum tækifæri til að:
• Kynnast aðferðafræði markþjálfunar sem öflugt tæki fyrir stjórnenda- og leiðtogaþjálfun
• Nýta sannreyndar og skilvirkar aðferðir við einkaráðgjöf (coaching tools)
• Auka sköpunargleði og efla samskipti og frammistöðu einstaklinga og hópa
Fyrirkomulag:
Dagsetning: 22. og 23. febrúar 2012 frá kl. 8:30-14 báða dagana
Verð: 85.000 kr. (þar með talin leyfisgjöld til CCUI og kennslugögn)
Innifalið í verði er undirbúningur, fyrirlestrar, hópstarf, kennsluefni og PDCA sjálfsmatskýrslur
auk veitinga
Leiðbeinandi: Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Opna háskólans
Skráning: SKRÁNING FER FRAM HÉR
Nánari upplýsingar: Nánari upplýsingar er að finna á vef Corporate Coach U hér.
Nánari upplýsingar veitir:
Særún Ósk Pálmadóttir
Verkefnafulltrúi Opna háskólans
S: 599 6342
Netfang: saerunosk@hr.is
Annað: Ekki er hægt að fella niður greiðsluseðil eftir að nám er hafið.
Tilkynna skal forföll skriflega til umsjónarmanns námskeiðsins. Nánar um greiðsluskilmála hér.

