Áhættustýring

Námskeiðið nær til fræðilegs og verklegs hluta áhættustýringar. Horft er til notkunar fyrirtækja á áhættustýringu til að stjórna og mæla áhættu, hvort sem um er að ræða markaðs-, útlána- eða vaxtaáhættu. Meðal umfjöllunarefna eru: Hvað er áhætta, hvernig skiptast einstaklingar í áhættuflokka og hver eru „rétt“ viðbrögð við áhættu? Fjallað verður um hvernig markaðsáhætta er mæld og ítarlega gert grein fyrir VaR (Value at Risk) í því sambandi.

Jafnframt verður horft til aðgerða er varða varnir og verðlagningu þeirra í áhættustjórnun sem mikið eru notaðar í fjármálum. Valréttir og notkun þeirra, ásamt útreikningum á virði eru útskýrð með dæmum. Verðlagning valrétta með þremur aðferðum er sýnd með dæmum.

Áhættustjórnun byggir á forsendum um normaldreifingu og er hún ítarlega skilgreind sem  og útskýrð með dæmum. Þá verða notagildisföll (e. Forwards and Futures) jafnframt sýnd og um þau fjallað. Einnig verður fjallað um samhengi stundarverðs eigna og framtíðarverðs, samhengið skilgreint og útskýrt með dæmum. Að lokum verður vöxtum og vaxtaferlum gerð skil og tæki og tól tengd vöxtum og áhættustýringu kynnt til sögunnar.

Markmið

Markmið þessa námskeiðs er að upplýsa þátttakendur um það hvað áhættustjórnun þýðir, af hverju hún er nauðsynleg og hverju hún getur áorkað. Þátttakendur munu kynnast mörgum af þeim líkönum og útreikningum sem notuð eru í þessu skyni, fá skilning á því út á hvað þau ganga og hvernig eigi að túlka niðurstöður slíkra útreikninga

Námskeiðið hentar fjármálastjórum og sérfræðingum fjármálafyrirtækja sem og öðrum sem hafa áhuga á efninu. Námskeiðið byggir á útreikningum og útfærslu þeirra í Excel og er undirstaða í notkun þess forrits því nauðsynleg.

Leiðbeinandi: Kristján Markús Bragason, MSc í fjármálum fyrirtækja og í fjárfestingastjórnun. Partner PricewaterhouseCoopers

 

Kennslufyrirkomulag

Staður: Opni háskólinn í HR, Menntavegi 1, 2. hæð (Mars-álma)

Stund: Námskeiðið er 8 klst langt og skiptist niður á tvo daga; fimmtudaginn 12. janúar 2012 og þriðjudaginn 17. janúar 2012 frá kl. 13-17 báða dagana

Verð: 49.000 kr.

 

EKKI ER LENGUR OPIÐ FYRIR SKRÁNINGAR ÞAR SEM NÁMSKEIÐIÐ ER FULLT. NÁMSKEIÐIÐ VERÐUR ÁN EFA HALDIÐ AFTUR NÆSTA HAUST.

 

Nánari upplýsingar veitir

saerunoskOHSærún Ósk Pálmadóttir

Verkefnafulltrúi Opna háskólans

Sími: 599 6342

Netfang: saerunosk@ru.is 

 

Nauðsynlegar upplýsingar við skráningu eru:

  • Fullt nafn
  • Kennitala
  • Símanúmer
  • Tölvupóstfang
  • Fullt nafn, kennitala og heimilisfang greiðanda ef annar en þátttakandi

*Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fella niður greiðsluseðil eftir að nám er hafið. Tilkynna skal forföll skriflega til umsjónarmanns námskeiðsins. Nánar um greiðsluskilmála hér.







Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica