Ábyrgð og árangur stjórnarmanna
Í þessum hluta námskeiðsins verður fjallað um hlutverk viðskiptasiðfræði í fyrirtækjamenningu og það hvernig stjórnarmenn geta haft áhrif á að siðferðisleg gildi séu höfð að leiðarljósi í starfsemi fyrirtækja. Kynntar verða þær leiðir sem þróaðar hafa verið fyrir stjórnendur fyrirtækja til þess að innleiða samfélagsábyrgð og siðferðisleg gildi í rekstur. Má þar m.a. nefna Global Compact verkefni Sameinuðu þjóðanna og Global Reporting Initiative en þessi verkefni njóta æ meiri vinsælda meðal fyrirtækja um allan heim og fjárfestar nota þau til þess að vega og meta áhættu fjárfestinga sinna. Fjallað verður sérstaklega um orðsporsáhættu fyrirtækja, en tortryggni og skortur á trausti í samfélaginu veldur því að stjórnarmenn í fyrirtækjum verða að leggja meiri áherslu en áður á að tryggja að fyrirtæki þeirra verði ekki skotspónn fjölmiðla og almennings vegna siðferðislegra álitamála.
Leiðbeinandi:
Stefán Einar Stefánsson, formaður VR. Stefán lauk BA prófi í guðfræði árið 2006 og Cand theol. prófi og MA í viðskiptasiðfræði frá HÍ 2008. Stefán hefur starfað með fjölda fyrirtækja og stofnana á sviði siðfræði frá 2008. Hann hefur einnig haldið fjöld erinda og námskeiða um efnið.
Fyrirkomulag
Tími: 30. maí frá kl. 9-12
Staðsetning: Háskólinn í Reykjavík, Menntavegi 1
Nánari upplýsingar
Heba Soffía Björnsdóttir
Verkefnastjóri Opna háskólans
Sími: 599 6576
Netfang: hebasoffia@ru.is
Nauðsynlegar upplýsingar við skráningu eru:
- Fullt nafn
- Kennitala
- Símanúmer
- Tölvupóstfang
- Fullt nafn, kennitala og heimilisfang greiðanda ef annar en þátttakandi
*Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fella niður greiðsluseðil eftir að nám er hafið. Tilkynna skal forföll skriflega til umsjónarmanns námskeiðsins. Nánar um greiðsluskilmála hér.

