Lagaleg viðfangsefni stjórna

Ábyrgð og árangur stjórnarmanna

 

Í þessum hluta verður veitt yfirsýn yfir ábyrgð og skyldur stjórnarmanna. Kynnt verða helstu lög, reglugerðir og fyrirmyndir að skilvirku starfi stjórna:

  • Helstu réttarheimildir, þ.m.t. lög um hlutafélög og einkahlutafélög, samanburður á samþykktum félaga og hluthafasamningum.
  • Megineinkenni hlutafélaga og einkahlutafélaga, eðli takmarkaðrar ábyrgðar, samanburður við önnur félagaform.
  • Stjórnkerfi hlutafélaga og einkahlutafélaga, verkefni tengsl og valdsvið stjórnar, framkvæmdastjóra og hluthafa,reglur um hlutafélagasamstæður og  álitaefni er varða stjórnunarheimildir móðurfélaga og mögulega ábyrgð þeirra.
  • Stjórnhættir hlutafélaga (e. Corporate Governance), viðfangsefni stjórna, straumar og stefnur, góðir stjórnarhættir.
  • Ábyrgð og skyldur stjórnarmanna, meðal annars með áherslu á reglur hlutafélagalaga um skyldur stjórnarmanna og viðskipti við tengda aðila, þ.á m. lánveitingar.
  • Möguleg skaðabóta- og refsiábyrgð stjórnarmanna.
  • Dómar um ábyrgð stjórnarmanna.
  • Samkeppnislög og samkeppnisreglur, skyldur og ábyrgð stjórnarmanna, viðurlög við samkeppnisbrotum.
  • Hvað þýða bannákvæði samkeppnislaga í reynd, hvers konar háttsemi getur falið í sér brot á samkeppnislögum, þ.e.a.s. hvað ber að varast?
  • Hvaða ábyrgð bera stjórnarmenn í þessu sambandi?
  • Hvaða viðurlög geta legið við samkeppnislagabrotum, annars vegar fyrir fyrirtækið og hins vegar fyrir stjórnarmenn persónulega?
  • Hvaða leiðir geta verið færar ef fyrir liggur grunur um samkeppnislagabrot?

 Leiðbeinandi

Jóhannes Rúnar Jóhannsson, stundakennari við HR og stjórnarmaður í skilanefnd Kaupþings.

Fyrirkomulag

Tími: 6. júní frá kl. 9-14

Staðsetning: Háskólinn í Reykjavík, Menntavegi 1

Nánari upplýsingar

Heba-SoffiaHeba Soffía Björnsdóttir

Verkefnastjóri Opna háskólans

Sími: 599 6576

Netfang: hebasoffia@ru.is

 

 


Nauðsynlegar upplýsingar við skráningu eru:

  • Fullt nafn
  • Kennitala
  • Símanúmer
  • Tölvupóstfang
  • Fullt nafn, kennitala og heimilisfang greiðanda ef annar en þátttakandi

*Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fella niður greiðsluseðil eftir að nám er hafið. Tilkynna skal forföll skriflega til umsjónarmanns námskeiðsins. Nánar um greiðsluskilmála hér.

 







Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica