Ábyrgð og árangur stjórnarmanna
Í þessum þætti er fjallað nánar um hlutverk stjórna og rýnt í undirliggjandi viðhorf og kenningar sem að því lúta. Sérstaklega eru eftirlits- og stefnumótunarhlutverk stjórna skoðuð og fjallað um þá togstreitu sem þessi tvö hlutverk geta skapað. Ýmsum þáttum er varðar ábyrgð og hagsmunaárekstra er velt upp, svo sem í þágu hverra er unnið og hvaða hagsmunaárekstra bera að varast. Fjallað verður um hæfniskröfur sem gerðar eru til stjórnarmanna og hugað að því hvernig samsetning stjórnar getur haft áhrif á verklag og árangur. Hlutverk stjórnarformanns og framkvæmdastjóra eru tekin til ítarlegrar skoðunar og fjallað um algengar mistúlkanir og ranghugmyndir um þessi hlutverk. Þá er sérstaklega fjallað um lykilþætti árangursríks stjórnarsamstarfs, uppbyggingu trausts og helstu þætti er varða upplýsingaflæði til stjórnar. Að lokum verður fjallað um starfsreglur stjórna, hlutverk þeirra og mikilvægi og nokkrum dæmum um starfsreglur stjórna varpað fram.
Leiðbeinandi
Dr. Þóranna Jónsdóttir, Framkvæmdarstjóri rekstrar og stjórnunar hjá Háskólanum í Reykjavík. Þóranna hefur víðtæka reynslu í stjórnun og innleiðingu breytinga sem stjórnandi og ráðgjafi hjá stórum og smáum fyrirtækjum. Þóranna var áður framkvæmdastjóri hjá Auði Capital. Hún vann áður hjá HR, þá sem lektor og forstöðumaður við viðskiptadeild. Hún hefur í meira en áratug sinnt kennslu á sviði markaðsmála, breytingarstjórnunar, fyrirtækjamenningar, stjórnarhátta og gerð viðskiptaáætlana. Þóranna er með MBA gráðu frá IESE í Barcelona og doktorsgráðu í stjórnun frá Cranfield University í Bretlandi.
Fyrirkomulag
Tími: 23. maí frá kl. 9-12
Staðsetning: Háskólinn í Reykjavík, Menntavegi 1
Nánari upplýsingar
Heba Soffía Björnsdóttir
Verkefnastjóri Opna háskólans
Sími: 599 6576
Netfang: hebasoffia@ru.is
Nauðsynlegar upplýsingar við skráningu eru:
- Fullt nafn
- Kennitala
- Símanúmer
- Tölvupóstfang
- Fullt nafn, kennitala og heimilisfang greiðanda ef annar en þátttakandi
*Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fella niður greiðsluseðil eftir að nám er hafið. Tilkynna skal forföll skriflega til umsjónarmanns námskeiðsins. Nánar um greiðsluskilmála hér.

