Grundvallaratriðin - Handbók stjórnarmanna
Almenn umfjöllun um hlutverk, ábyrgð og störf stjórna. Fjallað verður um viðfangsefnið út frá íslenskum lögum og Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja. Meðal umfjöllunarefnis er hlutverk og ábyrgð stjórnarmanna og stjórnarinnar í heild, árangursríkir stjórnarfundir og afmörkun starfsheimilda. Ennfremur er fjallað um: Atriði sem þarf að huga að áður en einstaklingur tekur að sér stjórnarsetu, framkvæmdastjóra, undirnefndir stjórna, innra eftirlit og áhættustýringu, hluthafafundi og ársreikning. Þá er einnig tæpt á stefnumótunarhlutverki stjórna og viðskiptasiðferði.
Sérstaklega verður farið yfir efni og notagildi Handbókar stjórnarmanna.
Leiðbeinandi
Berglind Ósk Guðmundsdóttir lögfræðingur á fyrirtækjasviði KPMG
Berglind lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2005 og hefur starfað hjá KPMG hf. frá útskrift. Berglind hefur meðal annars unnið fjölbreytt verkefni er varða stjórnarhætti, samkvæmni við lög og reglur auk annarra verkefna. Einnig hefur hún komið að því að gera úttektir hjá einstökum félögum varðandi stjórnarhætti og störf stjórnar.
Berglind er ritstjóri Handbókar stjórnarmanna sem KPMG gaf út í október 2010.
Fyrirkomulag
Tími: 16. maí frá kl. 9-12
Staðsetning: Háskólinn í Reykjavík, Menntavegi 1
Nánari upplýsingar
Heba Soffía Björnsdóttir
Verkefnastjóri Opna háskólans
Sími: 599 6576
Netfang: hebasoffia@ru.is
Nauðsynlegar upplýsingar við skráningu eru:
- Fullt nafn
- Kennitala
- Símanúmer
- Tölvupóstfang
- Fullt nafn, kennitala og heimilisfang greiðanda ef annar en þátttakandi
*Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fella niður greiðsluseðil eftir að nám er hafið. Tilkynna skal forföll skriflega til umsjónarmanns námskeiðsins. Nánar um greiðsluskilmála hér.

