Ábyrgð og árangur stjórnarmanna
Í þessum hluta er markmiðið að veita innsýn inn í fjárhagsleg viðfangsefni stjórna, m.a. það sem tengist verðmati fyrirtækja, greiningu og túlkun ársreikninga og áhrifum skattaumhverfis.
Ábyrgð stjórnarmanna á málefnum er varða verðmat fyrirtækja er skýr, hvort sem um er að ræða fyrirtæki sem skráð eru á markaði eða ekki. Verðmat skiptir máli þegar kemur að hlutafjáraukningu, samruna eða yfirtöku, einnig sölu á deild eða starfseiningu frá fyrirtækinu. Í þessum tilvikum þarf stjórn að meta samninga og grundvöll þeirra. Því er innsýn í helstu verðmatsaðferðir og lágmarks þekking á kostum og göllum mismunandi verðmatsaðferða nauðsynleg. Greining og túlkun ársreikninga er einnig mikilvægt atriði og er leitast við að nálgast málefnið útfrá praktískum dæmum í stað fræðilegrar umfjöllunar. Hagnýting rekstrarbókhalds og mikilvægi vandaðra fjárhagsupplýsinga verður til umfjöllunar. Farið er lauslega yfir skattaumhverfi íslenskra fyrirtækja.
Einnig verður farið yfir skráningu félaga á verðbréfamarkað út frá ýmsum sjónarhornum. Áhersla er lögð á að margt í því ferli nýtist öllum fyrirtækjum. M.a. er fjallað um sveiflur á markaði og í efnahagsstærðum og þau áhrif sem það getur haft á ákvarðanatöku. Fjallað er um reglur Kauphallar Íslands um skráð félög og hlutafjáraukning skoðuð út frá lagalegu sjónarhorni. Gefin verður innsýn í verðbréfamarkaðsrétt með sérstaka áherslu á upplýsingaskyldu og markaðsmisnotkun. Raunhæf dæmi verða nýtt til að varpa ljósi á ofangreint.
Leiðbeinendur:
Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda og Tanya Zharov lögfræðingur hjá Auði Capital.
Fyrirkomulag
Tími: 13. júní frá kl. 9-14
Staðsetning: Háskólinn í Reykjavík, Menntavegi 1
Nánari upplýsingar
Heba Soffía Björnsdóttir
Verkefnastjóri Opna háskólans
Sími: 599 6576
Netfang: hebasoffia@ru.is
Nauðsynlegar upplýsingar við skráningu eru:
- Fullt nafn
- Kennitala
- Símanúmer
- Tölvupóstfang
- Fullt nafn, kennitala og heimilisfang greiðanda ef annar en þátttakandi
*Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fella niður greiðsluseðil eftir að nám er hafið. Tilkynna skal forföll skriflega til umsjónarmanns námskeiðsins. Nánar um greiðsluskilmála hér.

