7 venjur til árangurs

Leiðbeinandi: Guðrún Högnadóttir

 

Smelltu hér til að skrá þig á næstu vinnustofu dagana 9. - 11. maí 2012

 

Heildrænt kerfi 7 Venja til árangurs hjálpar einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum að ná hámarks árangri í lífi og starfi og byggir á mest seldu stjórnunarbók allra tíma: 7 Habits of Highly Effective People, eftir Stephen Covey. Nánari upplýsingar um bókina má finna hér.

Markmið ferilsins

  • Persónuleg starfsþróun – kynntar eru aðferðir til að efla frumkvæði, skipuleggja sig, vinna að markmiðum og stefnu og virkja liðsheildina til árangurs.
  • Leiðtogaþróun — 7 Venjur til Árangurs efla hæfileika verðandi og vaxandi leiðtoga með því að skerpa framtíðarsýn, forgangsraða verkefnum, skilja betur eigin hlutverk og ná fram samlegðaráhrifum hópsins.
  • Efla hæfni í að takast á við breytingar — Það hefur sýnt sig að nálgun Covey á mjög vel við þar sem tekist er á við erfiðar eða umfangsmiklar breytingar og þar sem byggja á á traustum grunni gilda og framtíðarsýnar.

Hvaða valkostir?

Nánari upplýsingar um lengd, innihald og nálgun vinnustofa er að finna hér.

Ítarlegar upplýsingar um 7 venjur á vef Franklin Covey, m.a. vinnubækur, myndbönd og matstæki hér.

 

Vinnustofan byggir á verkum Stephen R Covey:

The 7 Habits of Highly Effective People
Principle Centered Leadership
The 8th Habit- From Effectiveness to Greatness 

  • Stephen R. Covey var viðurkenndur af Time tímaritinu sem einn af 25 áhrifamestu mönnum Bandaríkjanna
  • Árið 2002, nefndi Forbes tímaritið bókina The 7 Habits of Highly Effective People eina af 10 áhrifamestu stjórnunarbókum sem hafa verið gefnar út.
  • Í könnun Chief Executive Magazine tímaritsins var bókin The 7 Habits of Highly Effective People nefnd sem ein af tveimur áhrifamestu viðskiptabókum 21. aldarinnar.
  • BusinessWeek nefnir Stephen R. Covey sem einn af fimm eftirsóttustu fyrirlesurum heims.

 

Fullbókað var á vinnustofur okkar  sl. vetur og upplifun þátttakenda fór fram úr okkar björtustu vonum:

  • „...skylduþjálfun fyrir alla stjórnendur og lykilstarfsmenn framsækinna íslenskra fyrirtækja..”
  • „...eitt besta þjálfunarprógramm sem völ er á í heiminum til persónulegrar forustu og stjórnunar...”
  • „...venjurnar 7 opnuðu mér nýjar víddir í stjórnun og mannlegum samskiptum.
  • „...fyrir þá sem vilja ná árangri á markvissan hátt, þá er boðskapur Covey frábært veganesti á vandrataðri leið til árangurs...“
  • „...a necessety in developing management talent!“ 
     

Meðal þess sem unnið verður með á vinnustofunni er t.d.:

 * Að sýna frumkvæði og taka aukna ábyrgð  *Að virkja liðsheildina
 * Að stýra breytingum     * Að bæta færni í samningaviðræðum
 * Að skilgreina eigin stefnu og gildi     * Að nota öflugar leiðir til samskipta
 * Að stýra verkefnum með árangursríkum hætti   * Að beita skilvirkri hlustun og veita góða endurgjöf
 * Að hrinda í framkvæmd stefnu    * Að virkja sköpunargleði
 * Að framselja vald   * Að forgangsraða verkefnum og stjórna eigin tíma
 * Að nýta skilvirkar aðferðir til áætlunargerðar   * Að finna jafnvægi í lífi og starfi

 

Innifalið í vinnustofunni:

  • vönduð kennslugögn
  • innbundin vinnubók þátttakenda,
  • hljóðbækur og myndbönd fyrir hvern þátttakanda,
  • 360° rafrænt frammistöðumat,
  • persónulegar frammistöðuskýrslur,
  • bók Stephen Covey “The 7 Habits of Highly Effective People”,
  • Plan Plus® hugbúnaðurinn eða pappírsútgáfa af tímastjórnunarkerfi Covey, ýmis minnisspjöld,
  • 7 vikna samningur,
  • persónuleg heimasíða þátttakenda með ítarefni og eftirfylgni o.fl

Vinnustofan er upphaf 7 vikna ferlis sem samanstendur m.a. af eftirfarandi verkþáttum:   

  • Rafrænt 360° frammistöðumat.  Mat allt að 12 umsagnaraðila á frammistöðu þátttakanda.  Sú endurgjöf er leiðbeinandi um núverandi frammistöðu og setur viðmið fyrir áframhaldandi vöxt. 
  • Tveggja og hálfs dags vinnustofa sem einblínir á árangur á vinnustað og persónulegan árangur hvers og eins.  Vinnustofan byggir á verklegum og skriflegum æfingum, sjálfsmati, fyrirlestrum, myndböndum og mjög fjölbreyttum og gagnvirkum kennsluaðferðum.  Lögð er áhersla á árangur á vinnustað en þátttakendur tileinka sér aðferðir sem nýtast í senn í starfi, lífi og samfélagi okkar. 
  • Tímastjórnunarkerfi PlanPlus (FranklinCovey Planning System) sem vinnur með Microsoft Outlook eða á pappírsformi.  Um er að ræða einstaklega skilvirkt og virt kerfi til persónulegrar áætlunargerðar.
  • Sjö vikna samningur (Seven-Week 7 Habits Contract) er eftirfylgni fyrir hvern og einn þátttakanda í kjölfar vinnustofu sem gerir þátttakendum kleyft að meta eigin framvindu, miðla til annarra af eigin þekkingu, og nálgast ítarefni á eigin heimasíðu og í prentuðum samningi. 

 

Leiðbeinandi á námskeiðinu:

Guðrún Högnadóttir er framkvæmdastjóri Opna háskólans í HR, auk þess að leiða samstarf við lausnir Franklin Covey á Íslandi.  Auk stjórnunarstarfa og kennslu við HR hefur hún unnið síðastliðin ár sem leiðbeinandi og markþjálfi (executive coach) í íslensku atvinnulífi og leitt fjölda vinnustofa um árangur liðsheilda og vinnustaða.  Guðrún er viðurkenndur þjálfari í efni FranklinCovey um 7 venjur til árangurs, Leadership og 7 Habits of Highly Effective Managers auk Coaching Clinic CCUI.

 

Verð og umfang vinnustofu

Verð: 179.000.- kr*  (Sjötti hver þátttakandi frá hverju fyrirtæki fær ókeypis sæti.)

Tími: 9. - 11. maí 2012

Miðvikudagur 9. maí kl. 9:00-17:00

Fimmtudagur 10. maí kl. 9:00-17:00

Föstudagur 11. maí kl. 9:00-14:00

Staðsetning: Opni háskólinn í HR, Menntavegi 1 101 Reykavík

 

Smelltu hér til að skrá þig á næstu vinnustofu dagana 9. - 11. maí 2012

Nánari upplýsingar

saerunoskOHSærún Ósk Pálmadóttir

Verkefnafulltrúi Opna háskólans

Sími: 599 6342

Netfang: saerunosk@hr.is

www.facebook.com/opnihaskolinn

 

*Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fella niður greiðsluseðil eftir að nám er hafið. Tilkynna skal forföll skriflega til umsjónarmanns námskeiðsins. Nánar um greiðsluskilmála hér.

 

Nánari upplýsingar um vinnustofuna og aðrar lausnir Opna háskólans og Franklin Covey hér. 








Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica