Reglur um námskeiðsgjöld
Skráning í námskeið jafngildir samningi um greiðslu á námskeiðsgjaldi. Það sama gildir um umsóknir í lengra nám þótt samþykki um inngöngu hafi ekki borist. Ná þarf lágmarksþátttöku í námskeið svo námskeið verði haldið.
Þátttakandi sem er skráður á námskeið en hættir við að sitja það skal tilkynna forföll með skriflegum hætti til Opna háskólans með tveggja vikna fyrirvara. Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald skrái þátttakandi sig úr námskeiði innan tveggja vikna áður en námskeið hefst. Nánari upplýsingar um skráningar- og umsýslugjald er að finna á heimasíðu námskeiðs.
Forföll og innheimta námskeiðsgjalda
Opni háskólinn áskilur sér rétt til þess að innheimta skráningar- og umsýslugjald ef þátttakandi skráir sig úr námi innan tveggja vikna áður en námið hefst:
- Skráningar- og umsýslugjald í námsbrautir er kr. 50.000,-.
- Skráningar- og umsýslugjald í viðurkennda bókara er kr. 50.000,-.
- Skráningar- og umsýslugjald í 7 habits og coaching clinic er kr. 50.000,-.
- Skráningar- og umsýslugjald í lengra nám er kr. 25.000,-.
- Skráningar- og umsýslugjald í stök námskeið á háskólastigi er kr. 10.000,-.
- Námskeiðsgjald í styttri námskeið (4-16 klst.) er innheimt að fullu.
Láist þátttakanda að skrá sig úr námskeiði áður en það hefst eða hættir eftir að námskeið er hafið áskilur Opni háskólinn sér rétt til þess að innheimta allt að 100% af námskeiðsgjaldi.
Námskeiðsgjald er í öllum tilvikum innheimt að fullu ef eitt eða fleiri eftirfarandi atriða eiga við:
- Biðlisti er á námskeið.
- Námskeið er hafið og fjöldi þátttakenda nær einungis lágmarksfjölda þátttakenda.
- Um styttri námskeið er að ræða.
Nauðsynlegt er að tilkynna forföll með allt að mánaðar fyrirvara þegar um lengri nám/námsbrautir/námskeið er að ræða.
Upplýsingar um nauðsynlegan fyrirvara, skráningargjald og fleira er að finna í lýsingum um hvert námskeið fyrir sig.
Greiðslutilhögun
Í byrjun hvers námskeiðs eru sendir út greiðsluseðlar til þátttakenda. Einnig bjóðum við upp raðgreiðslur á Visa- og Mastercardkortum. Ef óskað er eftir raðgreiðslu þarf greiðandi að hafa samband við fjármálasvið Háskólans í Reykjavík að Menntavegi 1 eða í síma 599 6200.
Fyrirspurnir
Ef eitthvað í þessum skilmálum er óskýrt eða ef þú hefur einhverjar spurningar þá bendum við þér á að hafa samband við starfsfólk Opna háskólans, með tölvupósti á mailto:opnihaskolinn@ru.is eða í síma 599 6360.
Reglur Háskólans í Reykjavík um skólagjöld
Hér er að finna reglur HR um skólagjöld.

