Algengar spurningar markþjálfun

Spurt og svarað

 

a.   Hvað er markþjálfun (executive coaching)?

Markþjálfun er langtímasamband sérþjálfaðs markþjálfara og stjórnanda sem byggir á gagnkvæmu trausti, faglegri nálgun og öflugum stuðningi við þín markmið.  Markþjálfun er hlutlaus og uppbyggilegur vettvangur til þess að þekkja og nýta betur eigin styrkleika og tækifæri, kortleggja eigin væntingar og fá stuðning við að gera þína framtíðarsýn að veruleika.  Markþjálfarar vinna að því að virkja sköpunargleði einstaklinga og aðstoða þá við hrinda í framkvæmd raunhæfum og árangursríkum úrræðum. Markþjálfun getur einnig beinst að því að stuðla að lausnum á afmörkuðum vandamálum innan fyrirtækja og stofnana.

b.   Hvernig fer markþjálfun fram?

Markþjálfun styðst við markvissa viðtalstækni til að auka sjálfsskilning og ábyrgð einstaklinga.  Markþjálfun veitir viðskiptavinum umgjörð, stuðning og endurgjöf til að bæta eigin frammistöðu.  Markþjálfun byggir á hnitmiðuðum og vekjandi spurningum, viðtölum, verkefnum, prófum, æfingum, 360° mati og fræðslu þar sem stjórnandinn er í brennidepli.   Stuðst er við fjölda aðferða Corporate Coach U, International Coaching Federation, SHL, FranklinCovey, Linkage, o.fl.  

Samningur getur t.d. falið í sér áskrift að þriggja mánuða markþjálfun sem felst í sex viðtölum við markþjálfara, tveimur grunn prófum / matsaðferðum, aðgangi að greinum og fræðsluefni, auk símtala við Markþjálfara eftir þörfum.  Einnig er hægt að sérsníða Markþjálfunina nánar að þörfum einstaklinga eða fyrirtækja.

c.    Hvar fer markþjálfun fram?

Samtöl þín við markþjálfara geta farið fram á skrifstofu þinni, í fundarherbergjum okkar, í síma eða um netið.  Samtölin byggja á trúnaðarsambandi markþjálfara og viðmælanda, og einkennast af einlægni, virðingu og faglegum vinnubrögðum.

d.   Hver ætti að nýta sér markþjálfun?

Framúrskarandi íþróttamenn fara ekki á Ólympíuleikana án þjálfara.  Þeir treysta á þjálfarann til að fylgjast með og styðja við árangur, koma með ábendingar um betri frammistöðu og hvetja áfram innan vallar sem utan.  Með aðferðum markþjálfarar ávinnst það sama: hvatning til að ná sem lengst, forskot á keppinauta og  hámarksárangur.

e.   Hverjir vinna að markþjálfun?

 Þeir hafa margþætta reynslu úr íslensku og erlendu atvinnulífi, hafa unnið um árabil að stjórnunarráðgjöf, þjálfun og jafnvel einstaklingsmeðferð.  Markþjálfarar eru þjálfaðir til þess að hlusta, greina og aðlaga aðferðir sínar að sértækum þörfum hvers einstaklings og vinnuumhverfis.  Þeir leitast við að ná fram lausnum og gera sýn skjólstæðinga að veruleika. Líkja má starfi Markþjálfara við sambland af starfi stjórnunarráðgjafa, leiðbeinanda, markþjálfaraog íþróttaþjálfara en þar sem vinnan beinist að því að hver einstaklingur nái að nýta sér sem best faglega þekkingu sína og leysa úr læðingi meiri styrk og skapandi kraft.  Viðurkenndir markþjálfarar starfa samkvæmt alþjóðlega viðurkenndri aðferðafræði International Coaching Federation og eru vottaðir sem Associate Corporate Coach (ACC), PCC(Professional Corporate Coach) eða MCC (Master Corporate Coach).  Þeir hafa hlotið ítarlega þjálfun hjá viðurkenndum stofnunum og vinna markvisst að því að auka þekkingu þína á eigin lífi og starfi. 

f.     Hvað er markþjálfun ekki?

  1. Markþjálfun er ekki einhliða hvatningarræða, ekki sjálfsstyrkingarnámskeið og ekki einhliða kennslustund í stjórnunarfræðum eða tímastjórnun.  Þú munt hins vegar læra meira í markþjálfun um sjálfan þig, vinnustað þinn og samfélagið en í nokkru bóklegu námi.
  2. Markþjálfun er ekki skyndilausn á öllum þínum vandamálum, hún mun ekki hjálpa þér við að bjarga heiminum á svipstundu og markþjálfun mun ekki gera þig ríka(n) á einni nóttu.  Hins vegar mun markþjálfun stuðla að því að þú finnir og hagnýtir eigin auðlindir til að takast betur á við heiminn, líf þitt.
  3. Markþjálfun er ekki fyrir þá sem eru búnir að vera (“washouts”) – markþjálfun er fyrir sigurvegara - þá sem sækjast eftir hámarksárangri. Stjórnendur sem skara fram úr sækjast eftir markþjálfun.
  4. Markþjálfun hefst ekki á því að greina veikleika og fylla í eyðurnar.  Markþjálfun hefst á því að skilgreina metnaðarfulla og áhrifamikla framtíðarsýn – og stefna á stóra sigra.
  5. Markþjálfun einblínir ekki á hið augljósa, heldur á möguleika, sóknarfæri og tækifæri.
  6. Markþjálfun er ekki eitthvað sem á sér stað í nokkrar klukkustundir eftir árlegt frammistöðumat.  Markþjálfun felst í stöðugum stuðningi við leiðtoga sem vilja vera skapandi og ná sem lengst.

g.    Hver er munurinn á markþjálfun og stjórnunar- / rekstrarráðgjöf, stjórnendaþjálfun, markþjálfun, ?

Markþjálfun er sértæk aðferð til gera einstakling hæfari til að setja sér markmið, ná árangri og vinna að eigin breytingaferlum. Markþjálfun einblínir á sýn, dómgreind og markmið eins einstaklings og/eða hópa, og frammistöðu viðkomandi.  Þessi tegund ráðgjafar aðgreinist frá öðrum eins og hér segir:

Stjórnunarráðgjöf (consulting). Ráðgjafinn hefur aflað sér sérþekkingar á ákveðnu sviði, sem sóst er eftir. Stjórnunarráðgjafinn er líklegri til að greina vandamálin sjálfur og skapar lausnir, sem miða almennt að árangri skipuheildarinnar. Markþjálfun  byggir á því að hver einstaklingur og hópur skapi sínar eigin lausnir með agaðri aðferðafræði og öruggri umgjörð markþjálfarar.  Jafnframt vara samskipti markþjálfara og stjórnenda almennt lengur – frá ákvörðun að framkvæmd.

Handleiðsla (mentoring) byggir á því að handleiðarinn miðlar út frá langri eigin reynslu á því sviði, sem sá handleiddi starfar á.

Þjálfun eða kennsla  miðlar sértækri þekkingu til hópa, þar sem kennarinn setur markmið, sem byggja á námsskrá og síðan línulegri leið að markmiðinu.

Íþróttaþjálfari hefur sérfræðiþekkingu, sem hann notar til að leiðbeina og stýra íþróttamanni eða liðsheild að markmiði. Markþjálfunin leggur fyrst og fremst áherslu á einstaklingurinn eða liðsheildin skilgreini eigin markmið og skapi leiðir að þeim í samvinnu við markþjálfarann.

 

h.   Er markþjálfun sambærileg við meðferð geðlækna og sálfræðinga?

Nei. Grundvallarmunurinn liggur í því að geðræn vandamál krefjast annars konar greiningar og meðferðin er oftast fólgin í ráðgjöf eða samtalsmeðferð, með eða án lyfjameðferðar.

Markþjálfun fæst ekki við geðræn vandamál, heldur beinist að því að fá einstaklinginn sjálfan til að greina vanda og virkja eigin þekkingu og hæfni til lausnar vandamálum, sem tengjast markmiðum í vinnu eða einkalífi. Markþjálfararinn hefur ekki endilega sérþekkingu á því sviði sem einstaklingurinn vinnur á, heldur styðst hann við vel reyndar aðferðir til að gefa einstaklingnum tækifæri til að virkja eigin styrk og sköpunarkraft, sem leiðir beinlínis til aðgerða af hálfu viðkomandi. 

 

i.     Hvert er mitt hlutverk með markþjálfara?  Hvað þarf ég að gera?

Markþjálfun snýst um að spyrja nýrra og óvæntra spurninga, en ekki að gefa svör. Það er algjört lykilatriði að stjórnandinn sjálfur leiti og finni svörin sjálfur.  Einstaklingurinn mótar samskipti við markþjálfarann þannig að markmiðin fái persónulega þýðingu. 

Í því augnamiði vinnur markþjálfinn að því: 

  • Að einstaklingurinn skoði sjálfan sig í samhengi starfs og lífs, spyrji sig erfiðra spurninga, og horfist í augu við það óþægilega til þess að ná árangri.
  • Að einstaklingurinn læri að greina hegðun og tjáskiptamáta annarra.
  • Að einstaklingurinn læri að hlusta á sína innri rödd, væntingar og fordóma og hvaða áhrif hann hafi á aðra.
  • Að einstaklingurinn efli með sér sjálfsaga til greina eigin viðhorf,  fordóma og hegðun og þróa með sér nýjar leiðir til að ná sem bestum árangri.
  • Að einstaklingurinn nýti eigin styrk og takist á við eigin takmarkanir þannig að hann nái að þróa með sér stíl sem er líklegastur til árangurs.
  • Að einstaklingurinn temji sér að taka afgerandi ákvarðanir þó þær séu óþægilegar og þrátt fyrir eigið óöryggi, til að ná sem  mestum árangri.
  • Að einstaklingurinn  standi með sjálfum sér meðan hann reynir nýjar leiðir, eða þegar hann nær ekki árangri, og standa með öðrum í svipuðum aðstæðum.
  • Að einstaklingurinn taki sig ekki of alvarlega og beiti kímni til að létta andrúmsloft.
  • Að einstaklingurinn haldi ró sinni þegar á móti blæs.
  • Að einstaklingurinn hafi það að leiðarljósi að til að ná hámarksárangri þarf hugrekki til að teygja sig lengra, að grundvalla ekki aðgerðir á ótta heldur á trausti til sjálfs og annarra

j.    Fyrir hverja er markþjálfun?

Fjölbreyttar ástæður geta haft áhrif á það hvers vegna einstaklingur eða teymi kýs að vinna með markþjálfara. Hér á eftir eru taldar upp nokkrar ástæður, en þessi upptalning er alls ekki tæmandi: 

  • Brýn og ögrandi verkefni í sjónmáli.
  • Skortur á þekkingu, hæfni, sjálfstrausti eða aðföngum.
  • Krafa um að ná stórum áfanga á skömmum tíma.
  • Mótdrægni eða áföll, sem krefjast stefnubreytinga.
  • Samskiptastíll stjórnanda hamlar árangri í starfi.
  • Það skortir á skýrleika þegar kemur að valkostum.
  • Einstaklingurinn hefur náð mjög langt, en árangurinn hefur truflandi áhrif.
  • Stjórnandi þekkir ekki nægilega vel eigin styrk og hvernig beita má honum til meiri árangurs.
  • Misvægi milli vinnulífs og einkalífs sem veldur streitu.
  • Stjórnandi hefur þörf fyrir að geta skipulagt líf sitt betur út frá eigin forsendum.

 

k.    Hversu lengi varir markþjálfun?

Tímalengd ráðgjafar fer eftir eðli vanda og óskum stjórnanda og/eða teymis. Stundum er það látið nægja að gera samning til þriggja til sex mánaða, en oft er það svo að þeir sem biðja um þjálfunina telja lengri tíma henta betur. Tíðni viðtala er breytileg, allt frá vikulegum viðtölum yfir í viðtöl sem eru öðru hvoru, jafnvel með mánuði á milli. Tímalengdin ræðst af markmiðum, vinnuaðferðum einstaklinga og teyma, tíðni ráðgjafarfunda, og eins stýrir fjármagn, sem varið til markþjálfarar tíðni og tímalengd.







Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica