oh_adalsteinn

Stjórnmennt

17.04.2012, kl.13:00 - 17:00 Stjórnmennt

Starfsmannasamtöl, launaviðtöl og samningatækni

Námskeið fyrir einstaklinga sem vilja aukna færni í viðtalstækni og samningum.

Námskeiðslýsing

Lögð er áhersla á að kynna fyrir stjórnendum ákveðna þætti sem geta styrkt undirstöður þeirra og sjálfstraust til að takast á við það mikilvæga ferli að þekkja og undirbúa sig af kostgæfni fyrir starfsmannasamtöl og launaviðtöl. Í mörgum fyrirtækjum er launakostnaður einn af stærstu útgjaldaliðum fyrirtækisins og því skiptir miklu máli að vel sé haldið á málum. Að sama skapi eru launaviðtöl áskorun sem margir stjórnendur mundu gjarnan vilja vera án. Tilgangur og ávinningur af starfsmannasamtölum verður ræddur út frá ýmsum sjónarhornum s.s. stjórnanda, starfsmanns og yfirstjórnar.

Áhersla verður lögð á að þátttakendur námskeiðs fái hagnýta fræðslu um það hvernig þeir bera sig að í starfsmannasamtölum og launaviðtölum auk þess að þekkja helstu undirstöður í samningatækni tengt þessum þáttum.

 

Helstu viðfangsefni:

-  Undirbúningur yfirmanna og starfsmanna fyrir starfsmannasamtöl og launasamtöl

-  Uppbygging og framkvæmd

Flæði í samtölum

Markmiðasetning

Mælikvarði á gott samtal

- Eftirfylgni samtala

- Samningatækni í virkni

 

NÁNARI UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING


 






Útlit síðu:

Markþjálfun

18. ágúst 2011



Þetta vefsvæði byggir á Eplica