Stjórnmennt
Gæðastjórnun
Einföld leið að betri árangri í rekstri
Farið verður yfir kröfur ISO 9001:2008 staðalsins sem felur m.a. í sér hugtakið um gæði í fyrirtækinu, gæðahringinn, verkferla, flæðirit, gæðaeftirlit þ.m.t. innri og ytri úttektir, mikilvægi þátttöku allra starfsmanna og innleiðingu gæðahugsunar.
Lögð verða fyrir verkefni í tíma sem og á milli tíma sem lúta að gerð gæðastefnu og innleiðingu á gæðastjórnun. Námskeiðið byggir á virkri þátttöku nemenda.
Nánari upplýsingar og skráning fer fram hér


Samkvæmt skýrslu OECD (Education at a glance 2010) er símenntun grundvallarþáttur í aukinni færni á vinnustað og getu til að takast á við áskoranir vestrænna hagkerfa og fanga möguleika alþjóðavæðingar, tæknivæðingar og nýsköpunar í þjónustu.
