Stjórnmennt
Markþjálfun (Coaching Clinic)
Stjórnendaþjálfun - Markþjálfun
Nánari upplýsingar og skráning
Beint í leiðarkerfi vefsins.
Föstudaginn 24. júní útskrifaði Opni háskólinn 29 nemendur úr þremur námsbrautum. 6 nemendur útskrifuðust af námsbraut í Markaðssamskiptum og almannatengslum, 14 nemendur úr námsbraut í Verkefnastjórnun, 8 nemendur úr námsbraut í Mannauðsstjórnun og að auki var 1 nemandi að ljúka námsbraut í Stjórnun og rekstri fyrirtækja.
Þór Clausen forstöðumaður og Tinna Ösp Ragnarsdóttir verkefnastjóri hjá Opna háskólanum útskrifuðu nemendur.
Veittar voru viðurkenningar fyrir besta námsárangur í hverri braut fyrir sig. Viðurkenningar hlutu Jón Örn Guðmundsson í Markaðssamskiptum og almannatengslum, Guðrún Dröfn Gunnarsdóttir í Verkefnastjórnun og Anna Lára Guðfinnsdóttir í Mannauðsstjórnun. Þar að auki veitti Árni Árnason verðlaun fyirr hönd Gott Korts fyrir besta lokaverkefnið í Markaðssamskiptum og almannatengslum.
Lesa meiraHáskólinn í Reykjavík brautskráði í dag 23 nemendur með frumgreinapróf. Brautskráningin fór fram í nýju húsi Háskólans í Reykjavík í Nauthólsvík.
Við athöfnina flutti Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Opna háskólans ávarp. Af hálfu útskriftarnema talaði Lilja Björg Guðmundsdóttir og af hálfu eldri nemenda Þórhallur Sverrisson hagfræðingur og leikari. Langholtsdætur fluttu nokkur lög við athöfnina.
Við brautskráninguna hlaut Heiðar Jón Heiðarsson viðurkenningu Samtaka iðnaðarins fyrir bestan árangur í frumgreinanámi. Ingi Bogi Bogason, forstöðumaður mennta- og mannauðs afhenti Heiðari viðurkenninguna. Eftir að nemendur höfðu fengið skírteini sín talaði rektor Háskólans í Reykjavík dr. Ari Kristinn Jónsson.
Lesa meira
Samkvæmt skýrslu OECD (Education at a glance 2010) er símenntun grundvallarþáttur í aukinni færni á vinnustað og getu til að takast á við áskoranir vestrænna hagkerfa og fanga möguleika alþjóðavæðingar, tæknivæðingar og nýsköpunar í þjónustu.
Við kynnum fjölbreytt námsfraboð Opna háskólans í HR á haustönn. Styrktu stöðu þína og virkjaðu ný sóknarfæri með því að taka þátt í nýjum námsbrautum, lengri námskeiðum og styttri opnum hámskeiðum. Nánar hér.
Lesa meiraFöstudaginn 16. apríl útskrifuðust 24 nemendur úr tryggingaskólanum. Vátryggingarnám HR er í samvinnu við tryggingafélögin. Námið er í 3 hlutum og alls 135 klst.

Nú þegar hafa margir sótt um frumgreinanám á haustönn 2010 og eru umsóknir um 30% fleiri en á sama tíma í fyrra. Nemendur bera frumgreinanámi HR mjög vel söguna en þetta nám stendur á gömlum merg og er löngu búið að sanna sig sem góður undirbúningur fyrir háskólanám. Reynt verður að svara umsóknum fljótt og vel en til þess að hægt sé að afgreiða umsókn þurfa tilskilin fylgigögn, þ.e. staðfest afrit af námsferli og starfsvottorð, að berast skólanum og er best að senda þau til HR - Frumgreinanám, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík. Einnig er hægt að koma með fylgigögn í afgreiðsluna á 5. hæð í Ofanleiti. Nánar hér.
Lesa meira
Samkvæmt samantekt Stjórnmenntar Opna háskólans lítur út fyrir að íslenskir stjórnendur og sérfræðingar hafi lagt áherslu á að efla færni og þekkingu starfsmanna sinn og sjálfrar sín á síðastliðnu ári þrátt fyrir kreppu.
Lesa meiraReiknisskiladagur FLE 2009 fer fram þann 18. september n.k. Yfirskrift ráðstefnunnar er "Fjármálakreppan á Íslandi - brást umgjörð reikningsskila?
Lesa meiraNámskeiðið "Ábyrgð og árangur stjórnarmanna lífeyrissjóða" er sérsniðið að lífeyrissjóðunum og er haldið í samstarfi við ASÍ og viðurkennt af FME. Mikill áhugi er fyrir þessu námskeiði og er það senn að verða fullbókað. Upplýsingar um námið má finna hér
Lesa meiraStaðarlota fer fram dagana 21. - 23. ágúst í stofu 227 að Höfðabakka 9 Dagskráin hefst með móttöku nema kl. 8:30.
Lesa meiraFrábær þátttaka var á námskeið úm jákvæða sálfræði sem Opni háskólinn í HR hélt í samstarfi við Kennslu- og lýðheilsudeild og Lýðheilsustofnun. Námskeiðið var ha
Lesa meiraMikill áhugi á námskeiði fyrir stjórnarmenn fyrirtækja og stofnana
Lesa meiraSkráning á námskeið Fagmenntar í fullum gangi. Úrval öflugra námskeiða í lengra og styttra námi - til háskólaeininga eða beinnar hagnýtingar bíða þín.
Lesa meiraDiplómanám í markaðssamskiptum og almannatengslum
Lesa meiraFishing management - stjórnun í sjávarútvegi kynnt erlendum þátttakendum
Lesa meiraNemendur frá Úganda og Kína sækja námskeið Opna háskólans í HR
Lesa meiraSamstarfssamningur Opna háskólans og Skipta undirritaður á sviði MIT Industry Liason Program
Lesa meira