Stjórnmennt
Leiðir til úrlausna krefjandi starfsmannamála
Að leysa vandmeðfarin starfsmannamál með jákvæðum aðferðum
Hér er skoðað hið breiða umfangsefni sem starfsmannamál ná til. Horft til áhrifa persónulegra erfiðleika á starfsumhverfi og metnað. Tekið á bæði jákvæðum og neikvæðum hliðum starfsmannamála, og úrlausnum tengdum þeim. Horft til þeirra breyttu áherslna sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir varðandi starfsmannatengd málefni. Jafnframt er ákjósanleg frammistaða starfsmanna skoðuð, sem og frávik frá henni; mögulegir áhrifavaldar auk þess hvað fyrirtækið getur gert til að fyrirbyggja slaka frammistöðu.


Samkvæmt skýrslu OECD (Education at a glance 2010) er símenntun grundvallarþáttur í aukinni færni á vinnustað og getu til að takast á við áskoranir vestrænna hagkerfa og fanga möguleika alþjóðavæðingar, tæknivæðingar og nýsköpunar í þjónustu.
