Stjórnmennt
Starfsmannasamtöl, launaviðtöl og samníngatækni
Námskeið fyrir einstaklinga sem vilja aukna færni í viðtalstækni og samningum.
Námskeiðslýsing
Lögð er áhersla á að kynna fyrir stjórnendum ákveðna þætti sem geta styrkt undirstöður þeirra og sjálfstraust til að takast á við
það mikilvæga ferli að þekkja og undirbúa sig af kostgæfni fyrir starfsmannasamtöl og launaviðtöl. Í mörgum fyrirtækjum er launakostnaður einn af stærstu útgjaldaliðum fyrirtækisins og því skiptir miklu máli að vel sé haldið á málum. Að sama skapi eru launaviðtöl áskorun sem margir stjórnendur mundu gjarnan vilja vera án. Tilgangur og ávinningur af starfsmannasamtölum
verður ræddur út frá ýmsum sjónarhornum s.s. stjórnanda, starfsmanns og yfirstjórnar.
Lögð er áhersla á að kynna fyrir stjórnendum ákveðna þætti sem geta styrkt undirstöður þeirra og sjálfstraust til að takast á við
þetta mikilvæga verkefni.
Áhersla verður lögð á að þátttakendur námskeiðs fái hagnýta fræðslu um það hvernig þeir bera sig að í starfsmannasamtölum og launaviðtölum auk þess að þekkja helstu undirstöður í samningatækni tengt þessum þáttum.
Helstu viðfangsefni:
- Undirbúningur yfirmanna og starfsmanna fyrir starfsmannasamtöl og launasamtöl
- Uppbygging og framkvæmd
- Flæði í samtölum
- Markmiðasetning
- Mælikvarði á gott samtal
- Eftirfylgni samtala
- Samningatækni í virkni
NÁNARI UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING


Samkvæmt skýrslu OECD (Education at a glance 2010) er símenntun grundvallarþáttur í aukinni færni á vinnustað og getu til að takast á við áskoranir vestrænna hagkerfa og fanga möguleika alþjóðavæðingar, tæknivæðingar og nýsköpunar í þjónustu.
