Stjórnmennt
Stjórnun viðskiptatengsla (CRM)
Markaðsumhverfið hefur breyst mikið undanfarin ári og áratugi. Tengsl fyrirtækja við viðskipavininn skipa nú ríkari sess. Markaðssetning nú miðar meira að því að halda í núverandi viðskiptavini en að leitast stöðugt við að ná í nýja með einhliða boðskiptum frá fyrirtæki til neytenda. Vegna þessa er stjórnun viðskiptatengsla mikilvægari en áður. Eina sala er ekki endapunktur heldur byrjun á sambandi. Hugmyndafræðin sem framangreint byggir hefur verið nefnt samskiptamarkaðssetning. CRM er angi af samskiptamarkaðssetningu og er ferlið að safna og nota upplýsingar um viðskiptavini sem auka skilning á viðskiptavinunum til að geta þjónustað þá betur.


Samkvæmt skýrslu OECD (Education at a glance 2010) er símenntun grundvallarþáttur í aukinni færni á vinnustað og getu til að takast á við áskoranir vestrænna hagkerfa og fanga möguleika alþjóðavæðingar, tæknivæðingar og nýsköpunar í þjónustu.
