Stjórnmennt
Coaching Clinic
Að laða fram það besta með aðferðum markþjálfunar
The Coaching Clinic er tveggja daga þjálfun fyrir stjórnendur í hugmynda- og aðferðafræði markþjálfunar (coaching).
Á þessari áhrifaríku vinnustofu verður kynnt aðferðafræði “coaching” (markþjálfunar) sem er talin ein árangursríkasta leiðin að farsælum samskiptum og hvatningu sérfræðinga, stjórnenda og starfsmanna. Þátttakendum verður veitt innsýn í hugmynda- og aðferðafræði markþjálfunar (executive coaching) og fá hagnýta þjálfun í að leiða einstaklinga og teymi til bættrar frammistöðu.
Coaching Markþjálfun miðar að því að hámarka getu og laða fram kjörframmistöðu einstaklinga í lífi og starfi. Um er að ræða skilvirka aðferð við stjórnun og dagleg samskipti sem eflir stjórnendur og starfsmenn í að nýta sem best faglega þekkingu sína og persónulegan styrk við úrlausn daglegra verkefna í vinnu.
Markmið
Markmið þjálfunarinnar eru eftirfarandi:
1. Að veita þátttakendum hagnýta innsýn í nýjungar og “best practices” á sviði leiðtogaþjálfunar.
2. Að þjálfa lykilstarfsfólk í aðferðafræði markþjálfunar og veita því tækifæri til beita nýrri færni við dagleg störf.
3. Að virkja og varðveita frumkvæði starfsmanna og vinna að stöðugum umbótum með sannreyndum og áhrifaríkum aðferðum.
4. Að þróa og styðja við frumkvöðlastarf á sviði internal coaching.


Samkvæmt skýrslu OECD (Education at a glance 2010) er símenntun grundvallarþáttur í aukinni færni á vinnustað og getu til að takast á við áskoranir vestrænna hagkerfa og fanga möguleika alþjóðavæðingar, tæknivæðingar og nýsköpunar í þjónustu.
