Stjórnmennt
ÁBYRGÐ OG ÁRANGUR STJÓRNARMANNA
Námslína unnin í samstarfi við Viðskiptaráð Íslands og Fjármálaeftirlitið
FME á fulltrúa í fagráði námsins sem gætir þess að efnistök námskeiðsins falli að áherslum eftirlitsins.
Námslínan samanstendur af námskeiðum sem öll eru ætluð stjórnarmönnum fyrirtækja og stofnana. Markmið námslínunnar er að efla faglegan grunn stjórnarmanna m.a. með þjálfun á sviði lagalegra, fjárhagslegra og siðferðilegra viðfangsefna.
Verð:159.000 kr.
Staðsetning: Opni háskólinn í HR, Menntavegi 1, 101 Reykjavík
Stund: Miðvikudaga frá 8. febrúar til 7. mars 2012


Samkvæmt skýrslu OECD (Education at a glance 2010) er símenntun grundvallarþáttur í aukinni færni á vinnustað og getu til að takast á við áskoranir vestrænna hagkerfa og fanga möguleika alþjóðavæðingar, tæknivæðingar og nýsköpunar í þjónustu.
