Stjórnmennt
SKULDABRÉF
Notagildi, eiginleikar og útreikningar
Námskeiðið tekur á flestum tegundum skuldabréfa og verða eiginleikar mismunandi skuldabréfa skilgreindir. Farið verður yfir aðferðir við útreikninga á flestum skuldabréfum og uppsetningu útreikninga þeirra í líkanaformi.
Námskeiðið tekur á eiginleikum meðaltíma og íhvolfa sem notuð eru við útreikninga á viðkvæmni verðmætis skuldabréfa þegar breytingar verða á ávöxtunarkröfu. Farið verður í útreikninga og dæmi sem og útskýringar og túlkun á niðurstöðu næmigreiningar.
Námskeiðið hentar þeim sem hafa lágmarksþekkingu á skuldabréfum og eiginleikum þeirra og vilja bæta við þekkingu sína. Það hentar vel stjórnendum fjármála sem og starfsmönnum fjármálasviða fyrirtækja.
Nánari upplýsingar og skráning fer fram hér


Samkvæmt skýrslu OECD (Education at a glance 2010) er símenntun grundvallarþáttur í aukinni færni á vinnustað og getu til að takast á við áskoranir vestrænna hagkerfa og fanga möguleika alþjóðavæðingar, tæknivæðingar og nýsköpunar í þjónustu.
