Stjórnmennt
Fjármál - skilningur, greiningar og fjárfestingar
Námskeiðslínan skiptist í þrennt og er hver hluti fjórar klukkustundir.
Þar er fjallað um eftirfarandi:
1. Arðsemi fjármagns og fjárflæðis. Algengustu mælingar á arðsemi og ákvörðun ávöxtunarkröfu. Tegundir fjármögnunar, svo sem skuldabréf og eigið fé.
2. Verðmat fyrirtækja, sjóðstreymisflæði, kennitölumat og aðrar aðferðir
3. Ársreikningar og notkun á upplýsingum sem í þeim eru. Rekstrarreikningur, sjóðsstreymi og mat eigna í efnahagsreikningi. Tekjuskattur og tekjuskattsinneignir.


Samkvæmt skýrslu OECD (Education at a glance 2010) er símenntun grundvallarþáttur í aukinni færni á vinnustað og getu til að takast á við áskoranir vestrænna hagkerfa og fanga möguleika alþjóðavæðingar, tæknivæðingar og nýsköpunar í þjónustu.
