Stjórnmennt
Markaðssetning í niðursveiflu
•Mikilvægi þess að halda í núverandi neytendur (hvað segja rannsóknir?)
•Greiningar á virði markhópa, hverjir eru verðmætastir?
•Neytenda- og markaðsrannsóknir í kreppu.
•Virði og verðlagning í niðursveiflu. Hvernig á fyrirtækið að aðlagast breyttum aðstæðum?
•Samþætt markaðssamskipti og tilfærslur milli miðla í kreppu.
Markmið með þessu námskeiði er að þátttakendur fái innsýn í hvaða þættir skipta máli til að hagræða í markaðsmálum og markaðssetningu án þess að tapa markaðshlutdeild. Kynnt verða greiningartæki og aðferðir sem hjálpa fyrirtækjum að standast breytt landslag í efnahagsmálum (og jafnvel græða á þeim).
Nánari upplýsingar og skráning hér


Samkvæmt skýrslu OECD (Education at a glance 2010) er símenntun grundvallarþáttur í aukinni færni á vinnustað og getu til að takast á við áskoranir vestrænna hagkerfa og fanga möguleika alþjóðavæðingar, tæknivæðingar og nýsköpunar í þjónustu.
