Að laða fram kjörframmistöðu einstaklinga í lífi og starfi með aðferðum markþjálfunar
Markþjálfun miðar að því að virkja getu og laða fram kjörframmistöðu einstaklinga í lífi og starfi. Með öflugri samtalstækni, matstækjum og eftirliti gerir markþjálfun einstaklingum kleift að nýta sem best faglega þekkingu sína og persónulegan styrk við úrlausn viðfangsefna. Markþjálfun fyrir stjórnendur er einkaþjálfun sem miðar að því að stjórnendur verði enn hæfari til að setja sér markmið, hrinda í framkvæmd áfromum sínum og ná árangri í starfi.
“Markmið einkaráðgjafar er það sama og markmið góðrar stjórnunar: að nýta til fullnustu verðmætar auðlindir fyrirtækisins.”
Harvard Business Review
Hvað:
Við byggjum á styrkleikum þínum og gerum þig enn hæfari við að vinna að markmiðum þínum, innleiða breytingar með farsælum hætti og ná árangri í krefjandi umhverfi. Opni háskólinn í HR vinnur að aukinni hæfni einstaklinga með markþjálfun með þremur nálgunum:
- Executive coaching - áskriftarsamningar
- Coaching Clinic - vinnustofa þar sem stjórnendum er kennd aðferðafræði markþjálfunar við leiðtogastarf sitt
- Námsbraut í markþjálfun - nám í markþjálfun (executive coaching) á háskólastigi til ACC gráðu
Hvernig:
Markþjálfun (Executive coaching ) er einstaklingsbundið viðskiptasamband til að laða fram það besta í stjórnendum. Markþjálfun má beita á ýmsa vegu bæði tengt vinnu og einkalífi og miðar að því að bætra árangur stjórnenda.
Markþjálfun er einkaþjálfun sem fer fram með viðtölum, verkefnum og mati sem miðar að því að einstaklingar verði hæfari til að setja sér markmið og ná árangri í starfi. Unnið er með styrkleikasvið stjórnenda í áskriftarsamningi til nokkura vika eða mánuða.
Hvers vegna:
-
Hámarkar faglega þróun og einstaklingsþroska.
-
Kortleggur leiðir til að bæta frammistöðu leiðtoga og stjórnenda
-
Dregur úr starfsmannaveltu.
-
Hjálpar stjórnendum að ná hraðar tökum á þáttum, þar sem þeir þurfa að bæta sig.
-
Leysir æðstu stjórnendur undan því að taka á ónógri frammistöðu undirmanna þar sem stjórnendaþjálfun getur bætt úr.
-
Að taka á ágreiningi (conflict management).
-
Auka áhrifamátt og slagkraft .
Hvaðan:
Stjórnendaþjálfun rætur í kenningum stjórnunar, viðskiptaráðgjafar og vinnusálarfræði og vinnan miðar að því að efla stjórnendur í þeim verkefnum sem þeir eru að fást við hverju sinni.
Hverjir:
Einkaþjálfarar Opna háskólans hafa umtalsverða reynslu af rekstri og stjórnendaþjálfun og hafa lokið ACC námi hjá viðurkenndum skólum. Jafnframt fylgja þeir siðareglum ICF.
Meðal samstarfsaðila á sviði markþjálfunar eru
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Högnadóttir, ACC

