Stjörnufræði
Fyrir krakka í 6. og 7. bekk grunnskóla
Kl. 10:00 - 11:30 á laugardögum
- Er líf í geimnum? -
Nemendur kynnast undrum alheimsins og fjallað verður á lifandi hátt um sólkerfið okkar, alheiminn og möguleikana á lífi í geimnum.
Einnig verður fjallað um tunglið, loftsteina og árekstragíga þar sem nemendur koma til með að gera tilraunir.
Að lokum verður farið í stjörnuskoðun þar sem viðfangsefni námskeiðsins verða skoðuð með eigin augum.
Kennarar: Sævar Helgi Bragason og Sverrir Guðmundsson
Sævar og Sverrir eru báðir ritstjórar Stjörnufræðivefsins. Þeir eru miklir áhugamenn um stjörnufræði og stjörnuskoðun og hafa kennt stjörnufræði á framhaldsskólastigi.

