Spænska I og II

Fyrir krakka í 6. - 10. bekk grunnskóla

Kl. 13:30 - 15:00 á laugardögum

- Quieres hablar más espanol? -

Námskeiðið er fyrir þá sem hafa grunn í spænsku og vilja viðhalda tungumálinu. Leitast er við að fara dýpra í málskilning og efla færni nemenda til að geta tjáð sig.

Orðaforði verður að miklu leyti kenndur í gegnum leiki, krossgátur og myndir. Málfræðikennslu verður haldið í lágmarki og frekar einblínt á orðaforða, málskilning og hversu gaman það er að tala spænsku :)

Menningarhlutinn verður kenndur með kortum á hljóð- og sjónrænan hátt, t.d. í gegnum kvikmyndir, með söng, tónlist og jafnvel dans!

Á námskeiðinu er lögð rík áhersla á samskiptahæfni og miðað að því að nemendur nái upp færni í lestri, skrift, hlustun og tali.

Kennari: Ragnheiður Kristinsdóttir

Skrá mig á námskeið









Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica