Leikfanga og vélaverkfræði
Fyrir krakka í 6. og 7. bekk grunnskóla
Kl. 10:00 - 11:30 á laugardögum
- Hefur þú velt fyrir þér hvernig prumpublaðra virkar? -
Veistu hvaða hlut (Vísbending: Það er vinsælt leikfang.) hefur verið kastað lengst í heiminum?
Á þessu námskeiði verður skoðað hvernig vinsæl leikföng virka t.d. upptrekktur bíll, gormurinn (slinky), Rubik Cube, Magic-8-Ball, prumpublaðra og penni sem lýsir í myrkri.
Við munum taka sumt af leikföngunum í sundur og skoða hvernig þau líta út að innan. Áhersla er lögð á hópavinnu, hönnun og hugmyndaauðgi í námskeiðinu.
Kennari: Hlynur Hauksson
Tölvunarfræðingur og stærðfræðikennari frá Háskólanum í Reykjavík.
Starfar sem tölvu- og stærðfræðikennari í Menntaskólanum í Kópavogi.

