Gettu miklu betur

Fyrir krakka í 8. - 10. bekk grunnskóla

Kl. 13:30 - 15:00 á laugardögum

- Stefnirðu á að taka þátt í Gettu betur eða viltu bara verða betri í Trivial í sumarbústaðnum? -

Árangur í spurningaleikjum er ekki meðfæddur!

Eins gaman og það er að læra hluti til þess að ná árangri í námi að þá er líka svo ótrúlega skemmtilegt að læra hluti bara af því að maður hefur áhuga á að vita meira. Ekki er verra að geta sýnt fram á snilli sína eins og svo margir gera í spurningaþáttum í fjölmiðlum, skóla- og vinnustaðakeppnum eða í spurningaspilum með vinum.

Á námskeiðinu verður lögð áhersla á að læra að afla sér almennrar þekkingar af sjálfsdáðum, einfaldlega af því að það gefur lífin gildi. Kennsluaðferðir munu byggjast á samvinnu kennara og nemenda, leikjum og keppnum af ýmsu tagi. Hver og einn nemandi verður hvattur áfram við að kanna eigin áhugasvið og sinna léttum heimaverkefnum til þess að fá meira út úr námskeiðinu.

Markmið:

  • Að nemendur öðlist færni í að afla sér fjölbreyttrar þekkingar af sjálfsdáðum og hafa gaman af.
  • Að undirbúa nemendur fyrir þátttöku í hverskyns spurningaleikjum og -keppnum.
  • Að gefa tilfinningu fyrir hlutverki spurningahöfunda og dómara.
  • Að nemendur læri að treysta á og vinna með öðrum.

Kennarar: Andri Egilsson og Anna Pála Sverrisdóttir.

Anna Pála og Andri sátu saman í Gettu betur-liði MH. Bæði hafa óbilandi áhuga á einskis nýtri þekkingu en telja reyndar að enginn fróðleikur sé fánýtur. Eftir menntaskóla fór Anna Pála í lögfræði og kláraði hana í haust. Hún hefur starfað við blaðamennsku, hjá Persónuvernd og á Alþingi. Fyrir utan þingstörf elskar Anna Pála ferðalög. Andri fór hinsvegar í stærðfræði í Háskóla Íslands og hefur stundað hana æ síðan, í Háskóla Íslands, Háskólanum í París og Háskólanum í Reykjavík þar sem hann starfar í dag. Hann stefnir á doktorsnám í haust. Fyrir utan stærðfræði, hefur Andri áhuga á tónlist, sögu og fjallgöngum, svo fátt eitt sé nefnt.

Skrá mig á námskeið 









Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica