Fyrir krakka í 6. - 10. bekk grunnskóla
Kl. 11:45 - 13:15 á laugardögum
- Voulez-vous parler français? -
(Langar ykkur að tala frönsku?)
Á námskeiðinu verður farið í grunnatriði franskrar tungu og menningar. Kennslan fer að mestu fram með einföldum samskiptum á milli nemenda og kennara með áherslu á framburðarkennslu. Nemendur læra t.d. að kynna sig og orðaforða sem tengist daglegu lífi. Orðaforðinn verður að miklu leyti kenndur á myndrænan hátt, með leikjum og spilum.
Frönsk menning verður kynnt samhliða kennslunni í tungumálinu. Þar verður m.a. stuðst við tónlist og myndefni, t.d. tónlistarmyndbönd og sýnishorn úr kvikmyndum.
Aðalmarkmið námskeiðsins er að nemendur fái lifandi áhuga á frönsku og frönskum menningarheimi. Stefnt er að því að þeir nái grunnfærni í hlustun og tali en einnig fást þeir lítið eitt við lestur og ritun. Lítið verður um beina málfræðikennslu. Nemendur verða kynntir fyrir góðum vefsíðum þar sem þeir geta haldið áfram frönskunáminu á eigin spýtur að námskeiði loknu.
Kennari: Margrét Helga Hjartardóttir
Að loknu stúdentsprófi nam Margrét Helga frönsku í eitt ár við háskóla í Montpellier, Université Paul Valéry. Í framhaldi af því lauk hún BA-prófi í frönsku frá Háskóla Íslands árið 1993. Frá 1993 til 1995 stundaði hún framhaldsnám í Strasbourg og lauk þaðan mastersprófi í franskri tungu og bókmenntum. Vorið 1996 lauk hún námi í kennsluréttindum við Háskóla Íslands.
Margrét Helga hefur kennt frönsku við Kvennaskólann í Reykjavík frá ársbyrjun 1998. Hún hefur einnig reynslu af frönskukennslu á grunn- og háskólastigi. Samhliða störfum sínum hefur hún sótt fjölmörg námskeið fyrir frönskukennara hér á landi, í Frakklandi og Belgíu.

